
Jalen Dupree var stigahæstur hjá ÍA í leiknum. Hér í leik gegn Hamri. Ljósm. vaks
Skagamenn töpuðu stórt gegn Ármanni
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "ÍA og Ármann mættust í 1. deild karla í körfuknattleik á föstudagskvöldið og fór leikurinn fram í íþróttahúsinu við Vesturgötu. Fyrsti leikhluti var nánast jafn á öllum tölum en Ármann átti síðasta orðið undir lokin og skoraði átta stig gegn engu stigi ÍA, staðan 20:29 þegar heyrðist í bjöllunni. Í öðrum leikhluta voru Skagamenn alls ekki með á nótunum og voru komnir sextán stigum undir um miðjan leikhlutann. Þeir skoruðu ekki nema sjö stig í honum öllum og staðan í hálfleik 27:49 Ármanni í vil.\r\n\r\nÍ þriðja leikhluta náðu Skagamenn aftur áttum þó þeir næðu ekki að minnka muninn að neinu ráði því bæði lið skoruðu 24 stig í leikhlutanum, staðan 51:73 fyrir fjórða og síðasta leikhluta. Um miðjan leikhlutann var ljóst að Skagamenn voru ekki að ná að koma til baka því þá var munurinn orðinn 31 stig og gestirnir ekkert á því að gefa eftir að neinu ráði. Þeir sigldu sigrinum án vandræða í heimahöfn og uppskáru stórsigur, lokatölur 66:97 fyrir Ármanni.\r\n\r\nStigahæstir hjá ÍA voru þeir Jalen Dupree sem var með 16 stig og 11 fráköst, Gabriel Adersteg var einnig með 16 stig og Davíð Alexander Magnússon með 10 stig. Hjá Ármanni var William Thompson með 20 stig og 11 fráköst, Egill Jón Agnarsson með 20 stig og Austin Bracey með 19 stig.\r\n\r\nNæsti leikur ÍA er á móti Fjölni næsta föstudag í Dalhúsum í Grafarvogi og hefst klukkan 19.15.",
"innerBlocks": []
}