
Borgarnes. Ljósm.mm
Breytingar hjá skipulags- og byggingardeild Borgarbyggðar
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Í september voru gerðar skipuritsbreytingar hjá sveitarfélaginu Borgarbyggð, nánar tiltekið í skipulags- og byggingardeild sem heyrir undir stjórnsýslusvið. Mikið og langvarandi álag hefur verið á þessari deild sveitarfélagsins um langa hríð og fjöldi opinna mála. Verkefnum hefur einnig fjölgað í takti við fjölgun verkefna í sveitarfélaginu. Fram kemur í tilkynningu á vef sveitarfélagsins að legið hafi fyrir í sumar að til að halda uppi góðu og markvissu þjónustustigi fyrir íbúa Borgarbyggðar þyrftu breytingar að eiga sér stað.\r\n\r\nÁkveðið var að Flosi Hrafn Sigurðsson sviðsstjóri stjórnsýslusviðs tæki við yfirstjórn deildarinnar. Guðný Elíasdóttir fyrrum deildarstjóri skipulags- og byggingardeildar vinnur í dag í sérverkefnum á sviði stærri framkvæmda og áætlana sveitarfélagsins. Auk þess fékkst heimild sveitarstjórnar til að auka stöðugildi hjá skipulagsfulltrúa um einn verkefnastjóra og hefur Margrét Helga Guðmundsdóttir verið ráðin í það starf tímabundið. Til viðbótar var ábyrgðarsviði annars starfsmanns á deildinni breytt og starfar viðkomandi nú eingöngu undir skipulagsfulltrúa.\r\n\r\nSamhliða þessum breytingum var einnig skerpt á vinnulagi, verkefnaskiptingu og verkferlum á deildinni sem verða til þess að einstök mál hljóti hraðari afgreiðslu en áður hefur verið. Var það til að mynda gert með breytingu á viðaukum við samþykkt Borgarbyggðar sem veita bæði skipulagsfulltrúa og skipulags- og byggingarnefnd heimild til fullnaðarafgreiðslu ákveðinna mála sem áður þurftu ætíð samþykkt sveitarstjórnar. Auk þess hefur öll vinna á deildinni verið straumlínulöguð sem verður til þess að afgreiðsla mála, skjalavistun og úrvinnsla umsókna er nú einfaldari og markvissari en áður.\r\n\r\n„Áfram verður unnið að þróun umbótaverkefna á næstu mánuðum og eru verkferlar deildarinnar í stöðugri endurskoðun,“ segir á heimasíðu sveitarfélagsins.",
"innerBlocks": []
}