Það var fjör hjá þessum krökkum á afmælisdaginn. Ljósm. borgarbyggd.is

Ugluklettur í Borgarnesi 15 ára

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Mikið var um dýrðir í leikskólanum Uglukletti síðastliðinn fimmtudag en skólinn hélt þá upp á 15 ára starfsafmæli sitt. Fram kemur á heimasíðu Borgarbyggðar að börnin í leikskólanum hafi fengið að skipuleggja daginn eftir sínu höfði og var meðal annars boðið upp á pizzu í hádeginu, hengdar voru upp blöðrur og bökuð dýrindis kaka í tilefni dagsins. Börnin buðu einnig foreldrum sínum og öðrum aðstandendum á opið hús, meðal annars til að sjá listasýningu sem sett var upp í salnum sem börnin höfðu unnið að í aðdraganda dagsins.\r\n\r\nFjöldi fólks heimsótti leikskólann í tilefni hátíðarinnar og samgladdist bæði börnum og starfsfólki.",
  "innerBlocks": []
}
Ugluklettur í Borgarnesi 15 ára - Skessuhorn