{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, verður staðsett með skrifstofu sína í Breið nýsköpunarsetri við Bárugötu á Akranesi fimmtudaginn 27. október. Snæfellsbær var fyrsti viðkomustaður Áslaugar Örnu um miðjan ágúst en hún hefur síðan þá meðal annars sótt Árborg, Akureyri, Ísafjörð og nú síðast Vestmannaeyjar. Á hverri starfsstöð verður ráðherra með opna viðtalstíma þar sem allir áhugasamir eru velkomnir í stutt spjall um málefni á borði háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytisins.\r\n\r\nFyrir hádegi mun ráðherrann nýta vinnurými á Breið þar sem hún fær kynningu á starfsemi hússins. Á milli kl. 10:30 og 11:30 fer fram opinn viðtalstími þar sem íbúar geta komið og átt stutt milliliðalaust spjall við ráðherra, viðrað hugmyndir og komið athugasemdum tengdum málefnum ráðuneytisins á framfæri. Eftir hádegi heimsækir hún fyrirtæki og fær kynningu á Grænum iðngörðum. Hún verður svo viðstödd setningu Vökudaga klukkan 17 í Tónbergi og tekur þátt í listagöngunni sem hefst klukkan 18.\r\n\r\nFrá því að nýtt háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti tók til starfa í febrúar hefur ráðuneytið verið opið fyrir störfum óháð staðsetningu. Í því felst að starfsemi ráðuneytisins er ekki bundin við einn ákveðinn stað þrátt fyrir að aðalstarfsstöð þess sé staðsett í Reykjavík. Þannig geta starfsmenn ráðuneytisins unnið að heiman eða frá þeim stað á landinu sem best hentar hverju sinni. Ráðherra er þar engin undantekning og með því að staðsetja skrifstofu ráðherra víðs vegar um landið gefst mikilvægt tækifæri til aukinnar tengslamyndunar og samstarfs við háskóla, stofnanir, fyrirtæki, sveitarfélög og einstaklinga um land allt.",
"innerBlocks": []
}