Guðrún Ögn Ákadóttir tekur hér á móti viðurkenningu. Ljósm. sá.

Norðurljósahátíðin í Stykkishólmi

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Norðurljósahátíðin sem fram fór í Stykkishólmi um helgina var vel heppnuð og margt var um manninn í bænum. Á setningarathöfn hátíðarinnar voru veittar viðurkenningar fyrir framlag til menningar og lista. Það er bæjarstjórn Stykkishólmsbæjar sem velur hver hlýtur viðurkenningu hverju sinni og í ár voru það Guðrún Ögn Ákadóttir, Jósep Blöndal og Jóhanna Guðmundsdóttir. Hrafnhildur Hallvarðsdóttir, forseti bæjarstjórnar, afhenti viðurkenningarnar sem var útskorin rjúpa eftir Láru Gunnarsdóttur.\r\n\r\nÍ Gallerí Bragga voru gestalistamenn með sýningar. Gréta María Árnadóttir, gullsmiður, var með pop up markað í Norska húsinu og Dalabræðurnir Davíð Sæmundsson og Guðmundur Bæringsson buðu í sing along á stofutónleikum. Við Frúarhól var útstilling á hækum á vegum Önnu Sigríðar Gunnarsdóttur. Lárus Ástmar Hannesson og Hólmgeir Þórsteinsson vorum með tónleika í gömlu kirkjunni sem voru eins konar blanda af tónlistarflutningi og ljósmyndum. Ingibjörg Ágústdóttir sýndi útskorna fugla í vinnustofu Tang og Riis og á sunnudeginum voru kvenfélagskonur með opið hús í Freyjulundi og seldu kaffi og dýrindis pönnukökur.\r\n\r\n[gallery columns=\"2\" size=\"large\" ids=\"57234,57235,57236,57237\"]",
  "innerBlocks": []
}
Norðurljósahátíðin í Stykkishólmi - Skessuhorn