Fréttir

true

Fyrstu hausttónleikar Kalmans listafélags

Söngur farfuglanna er er yfirskrift fyrstu tónleika haustsins hjá Kalman listafélagi sem haldnir verða í Vinaminni á Akranesi nk. fimmtudagskvöld klukkan 20. Fram kemur sérlega efnileg ung sópransöngkona, Bryndís Guðjónsdóttir, ásamt flautuleikaranum Pamela De Sensi og Guðríði St. Sigurðardóttur píanóleikara. Þar flytja þær fágaða og spennandi efnisskrá fyrir sópran, flautu og píanó eftir 19. og…Lesa meira

true

Rýmka reglur vegna líflambaflutnings

Samkvæmt ósk Matvælastofnunar hefur Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra samþykkt breytingu á reglugerð til að flytja megi á milli landsvæða lömb sem hafa verndandi eða mögulega verndandi arfgerð gegn riðu. Samkvæmt fyrri ákvæðum reglugerðarinnar var flutningur lamba óheimill inn á svæði þar sem greinst hafði riða. Til að vinna megi gegn sjúkdómnum telur Matvælastofnun mikilvægt að hægt…Lesa meira

true

Sveitarfélagið hyggst selja Hamarshúsið

Fyrir fundi byggðarráðs Borgarbyggðar í síðustu viku lá erindi frá Guðmundi Eyþórssyni og Ingimundi Ingimundarsyni þar sem boðuð var stofnun Hollvinasamataka um Hamarshúsið í Borgarnesi. Spurðu þeir sveitarstjórn í bréfinu hvort hún sæi annmarka á að stofna hollvinasamtökin. Slík varð reyndar raunin, samtökin stofnuð á formlegum fundi þar sem manns tóku þátt og kusu sér…Lesa meira

true

Skorradalshreppur ákveður að kæra Skógræktina

Á fundi hreppsnefndar Skorradalshrepps 22. september síðastliðinn voru m.a. til afgreiðslu fundargerðir skipulags- og byggingarnefndar hreppsins frá því fyrr í sumar. Í fundargerð nefndarinnar frá 22. ágúst var fjallað sérstaklega um meintar óleyfisframkvæmdir Skógræktarinnar á jörðunum Stóru-Drageyri og Bakkakoti á svæði þar sem aðalskipuleg gerir ekki ráð fyrir að skógrækt sé stunduð. Hreppsnefnd lét eins…Lesa meira

true

Markaður fyrir greiðslumark í sauðfé og mjólk

Í byrjun nóvember verður markaður fyrir greiðslumark í sauðfé. „Umsóknum um kaup og sölu greiðslumarks skal skila rafrænt á afurd.is. Opnað hefur verið fyrir umsóknir. Umsóknarfrestur rennur út á miðnætti 1. nóvember. Nánari upplýsingar um markaðinn s.s. um forgang við úthlutun má finna á afurd.is,“ segir í tilkynningu frá matvælaráðuneytinu. Markaður fyrir greiðslumark mjólkur verður…Lesa meira

true

Naumt tap Skagamanna á móti Sindra

ÍA tók á móti Sindra frá Hornafirði í fyrsta heimaleik vetrarins í 1. deild karla í körfuknattleik á föstudagskvöldið og fór leikurinn fram í íþróttahúsinu við Vesturgötu. Leikurinn fór frekar rólega af stað og var jafnræði með liðunum nánast allan leikhlutann, staðan jöfn 17:17 við lok fyrsta leikhluta. Annar leikhluti var á svipuðum nótum þar…Lesa meira

true

Skallagrímur tapaði fyrir nýliðum Ármanns

Ármann og Skallagrímur mættust í fyrstu umferð 1. deildar karla í körfuknattleik á föstudagskvöldið og fór leikurinn fram í Kennaraháskólanum. Ármann, sem er nýliði í deildinni, byrjaði mun betur í fyrsta leikhluta og var með tíu stiga forystu þegar honum lauk, 29:19. Heimamenn hömruðu járnið á meðan það var heitt í öðrum leikhluta og juku…Lesa meira

true

Guðjón Þórðarson ekki áfram hjá Víkingi Ólafsvík

Stjórn knattspyrnudeildar Víkings Ólafsvíkur hefur ákveðið að endurnýja ekki samning sinn við Guðjón Þórðarson um áframhaldandi samstarf og mun Guðjón því ekki halda áfram sem þjálfari liðsins. Þetta kemur fram í tilkynningu sem félagið sendi frá sér í hádeginu. „Guðjón hefur í tvígang tekið við liðinu á erfiðum tímapunkti og unnið ákaflega gott starf í…Lesa meira

true

Útskipun á járni til Hollands

Þessa dagana stendur yfir útskipun á járni í Akraneshöfn sem safnað hefur verið á athafnasvæði Gámu á Akranesi síðustu mánuði. Það er Málmaendurvinnslan ehf. sem stendur að verkefninu en Terra umhverfisþjónusta aðstoðar við flutninga. Með því að safna járninu á Akranesi og skipa því beint út minnkar kolefnisspor járnaflutninga umtalsvert en um er að ræða…Lesa meira

true

Stórsigur hjá Skagakonum í síðasta leik sumarsins

ÍA og KH kepptu á laugardaginn í síðustu umferðinni í úrslitakeppni efri hluta 2. deildar kvenna í knattspyrnu og vegna slæmrar veðurspár fór leikurinn fram í Akraneshöllinni. Leikurinn var varla hafinn þegar Skagakonur voru komnar yfir í leiknum. Samira Suleman fékk þá sendingu yfir vörn KH, skaut að marki sem markvörðurinn varði en Samira náði…Lesa meira