Fréttir

true

Brennur fyrir jöfnuði og velferð barna

Arnbjörg Stefánsdóttir er jafnréttissinni, húmoristi og amma og hefur auk þess verið skólastjóri Brekkubæjarskóla á Akranesi í 16 ár. Hún flutti með fjölskyldu sína til Akraness frá Höfn í Hornafirði árið 2005 þegar hún fékk starf sem aðstoðarskólastjóri við skólann en tilviljun réði því að hún sótti um það starf. Blaðamaður Skessuhorns kíkti á skrifstofuna…Lesa meira

true

„Ekki sjálfgefið að komast upp úr þessari deild“

Rætt við Guðjón Þórðarson þjálfara Víkings um nýlokið tímabil Víkingur Ólafsvík varð í sjöunda sæti í 2. deild karla í knattspyrnu í sumar með 28 stig, vann sjö leiki, gerði sjö jafntefli og tapaði átta leikjum. Liðið hafði leikið í Lengjudeildinni síðustu fjögur ár en lék í fyrsta skipti í 2. deild frá árinu 2010.…Lesa meira

true

Skorradalshreppur mun kæra Skógræktina

Á fundi hreppsnefndar Skorradalshrepps 22. september síðastliðinn voru m.a. til afgreiðslu fundargerðir skipulags- og byggingarnefndar hreppsins frá því fyrr í sumar. Í fundargerð nefndarinnar frá 22. ágúst var fjallað sérstaklega um meintar óleyfisframkvæmdir Skógræktarinnar á jörðunum Stóru-Drageyri og Bakkakoti á svæði þar sem aðalskipuleg gerir ekki ráð fyrir að skógrækt sé stunduð. Hreppsnefnd lét eins…Lesa meira

true

Rútuöngþveiti á höfninni

Þriðjudaginn 20. september síðastliðinn kom skemmtiferðaskipið Island Princess og lagðist að ytri höfninni í Grundarfirði. Á meðfylgjandi mynd, sem er tekin rétt áður en fyrstu farþegarnir stigu í land, má sjá að allir eru tilbúnir til að taka á móti ferðamönnunum. Gula Kirkjufell Express rútan bíður átekta á meðan fjöldi hópferðabíla voru tilbúnir að aka…Lesa meira

true

Kveðju- og innsetningarmessa í Borgarneskirkju

Kveðjumessa séra Þorbjörns Hlyns Árnasonar og innsetningarmessa séra Heiðrúnar Helgu Bjarnadóttur var í Borgarneskirkju síðastliðinn sunnudag. Tekur Heiðrún Helga nú við starfi prests í Borgarprestakalli. Fjöldi fólks sótti athöfnina þar sem sr. Þorbjörn Hlynur þjónaði fyrir altari ásamt sr. Önnu Eiríksdóttur sóknarpresti í Stafholti. Í ræðu sinni þakkaði hann samstarfsfólki sínu þau rúm fjörutíu ár…Lesa meira

true

Háskólinn á Bifröst hlýtur 64 milljóna króna styrk

Háskólinn á Bifröst er aðili að nýju alþjóðlegu rannsóknarverkefni sem heitir IN SITU en það er verkefni sem er styrkt af Horizon, sjóði framkvæmdarstjórnar Evrópusambandsins. Samstarfsaðilar Háskólans á Bifröst á Íslandi í IN SITU eru Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV) og Breið þróunarfélag en að verkefninu koma í heild sinni 13 samstarfsaðilar frá 12 löndum.…Lesa meira

true

Bátur sökk í Stykkishólmi

Báturinn Páll Helgi ÍS sökk við Skipavíkurbryggju í Stykkishólmi í óveðrinu sem reið yfir um síðustu helgi. Kjartan Kjarvalsson hafnarvörður sagði í samtali við Skessuhorn í dag, að verið væri að hífa bátinn upp. ,,Þetta er gamall trébátur og var hann ónýtur fyrir. Þegar gerir vestanátt eru bátar við þessa bryggju í hættu en þetta…Lesa meira

true

Forstjóri OR boðar afsögn sína úr starfi

Á fundi stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur í gær upplýsti Bjarni Bjarnason að hann hyggist láta af störfum forstjóra. Meðfylgjandi bókun lét hann fylgja með uppsögn sinni: „Fyrsta mars á næsta ári eru 12 ár liðin síðan ég tók við starfi forstjóra Orkuveitu Reykjavíkur. Það er vilji minn að láta af starfi forstjóra á þeim tímamótum. Með…Lesa meira

true

Lokadagar listviðburðarins Móðir, kona, meyja

Laugardaginn 3. september síðastliðinn var listviðburðurinn MÓÐIR-KONA-MEYJA opnaður í Safnahúsi Borgarfjarðar í Borgarnesi. Fyrir viðburðinum stóðu þrjár konur; þær Svanheiður Ingimundardóttir, S. Tinna Gunnarsdóttir, sem er dóttir Svanheiðar, og Tara Björk Helgadóttir, dóttir S.Tinnu. Sem sagt þrír ættliðir kvenna. Viðburðurinn samanstendur af málverkum, listmunum úr leir og ilmreyr. Auk þess héldu yngri mæðgurnar tónleika á…Lesa meira

true

Breytingar á flokkun sorps taka gildi um áramót

Til stendur að breyta fyrirkomulagi á sorptunnum og flokkun á heimilum á Akranesi. Samkvæmt lögum sem taka gildi um næstkomandi áramót þá verður skylt að flokka sorp á heimilum í sex flokka sem eru: Málmar, gler, plast, pappi/pappír, lífrænt og blandað sorp. Fram kemur á heimasíðu Akraneskaupstaðar að við þá breytingu mun fyrirkomulag sorpíláta breytast…Lesa meira