Rútuöngþveiti á höfninni

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Þriðjudaginn 20. september síðastliðinn kom skemmtiferðaskipið Island Princess og lagðist að ytri höfninni í Grundarfirði. Á meðfylgjandi mynd, sem er tekin rétt áður en fyrstu farþegarnir stigu í land, má sjá að allir eru tilbúnir til að taka á móti ferðamönnunum. Gula Kirkjufell Express rútan bíður átekta á meðan fjöldi hópferðabíla voru tilbúnir að aka umhverfis Snæfellsnes. Alls má sjá 17 hópferðabíla á myndinni. Leiðsögumenn og aðrir þjónustuaðilar í startholunum fyrir annasaman morgun. Island Princess var síðasta skipið sem kom þetta sumarið en töluverð aukning er í bókunum fyrir næsta sumar.",
  "innerBlocks": []
}
Rútuöngþveiti á höfninni - Skessuhorn