
Arnbjörg er hér í hjólatúr í Garðalundi með tveimur eldri ömmustrákunum sínum.
Frá vinstri: Brynjar Logi Gíslason og Valur Heiðar Gíslason.
Brennur fyrir jöfnuði og velferð barna
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Arnbjörg Stefánsdóttir er jafnréttissinni, húmoristi og amma og hefur auk þess verið skólastjóri Brekkubæjarskóla á Akranesi í 16 ár. Hún flutti með fjölskyldu sína til Akraness frá Höfn í Hornafirði árið 2005 þegar hún fékk starf sem aðstoðarskólastjóri við skólann en tilviljun réði því að hún sótti um það starf. Blaðamaður Skessuhorns kíkti á skrifstofuna til Arnbjargar með það að markmiði að kynnast þeirri persónu sem hún hefur að geyma.\r\n\r\nArnbjörg er gift Halldóri Brynjari Þráinssyni og saman eiga þau tvö uppkomin börn, Gísla og Hjördísi, og þrjú barnabörn. Arnbjörg segist í grunninn vera Hornfirðingur en þar er hún alin upp og segir að þar liggi sínar rætur. Þó sé hún Skagamaður núna og kynnir sig sem slíkan sé hún spurð. Henni og fjölskyldunni allri líður vel á Akranesi en áður en Arnbjörg flutti á Skagann hafði hún aðeins einu sinni komið þangað áður. Þau hjónin festu kaup á húsi á Akranesi, áður en þau fluttu þangað, án þess að skoða það. Það virðist hafa verið gæfuspor því enn þá búa þau í húsinu og hafa skapað þar góðar minningar.\r\n\r\n<strong>Með útklippta auglýsingu í vasanum</strong>\r\n\r\nÞegar Arnbjörg var ráðin aðstoðarskólastjóri Brekkubæjarskóla árið 2005 hafði hún verið skólastjóri Grunnskóla Hornafjarðar í nokkur ár. Árið 2006 tók hún svo við starfi skólastjóra Brekkubæjarskóla. Arnbjörg segir að tilviljun hafi í raun ráðið því að hún og fjölskylda hennar enduðu á Akranesi. „Það var þannig að ég var að bíða eftir leigubíl um miðja nótt heima hjá systur minni í Reykjavík og var að skoða Fréttablaðið sem var nýdottið inn um lúguna. Þar sá ég auglýsta aðstoðarskólastjórastöðu í Brekkubæjarskóla á Akranesi. Ég klippti út auglýsinguna og gekk með hana í vasanum í tvær vikur áður en ég ákvað svo að sækja um.“ -En af hverju að sækja um stöðu aðstoðarskólastjóra þegar hún var þá þegar skólastjóri? „Mér fannst ekki skipta neinu máli hvort það var aðstoðarskólastjórastaða eða eitthvað annað, mér fannst það ekkert ómerkilegra. Við hjónin höfðum hugsað það í nokkurn tíma að flytja frá Höfn. Okkur langaði ekki til Reykjavíkur en vorum svona jafnvel að skoða einhverja bæi þar í kring. Ég spáði einhvern veginn aldrei í skólastjórastöðum í stórum skólum af því ég var alveg viss um að ég myndi aldrei ráða við að vera skólastjóri í svona fjölmennum skóla. Ég var bara með 180 börn í skólanum á Hornafirði og þar var ég bara með miðstig, því skólakerfið var þannig þar,“ segir Arnbjörg sem nú stýrir skóla með tæplega 500 nemendum.\r\n\r\n<em>Opnuviðtal við Arnbjörgu Stefánsdóttur er að finna í nýjasta tölublaði Skessuhorns sem kom út í dag.</em>",
"innerBlocks": []
}