
Guðjón Þórðarson fráfarandi þjálfari Víkings. Ljósm. af
„Ekki sjálfgefið að komast upp úr þessari deild“
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "<em>Rætt við Guðjón Þórðarson þjálfara Víkings um nýlokið tímabil</em>\r\n\r\nVíkingur Ólafsvík varð í sjöunda sæti í 2. deild karla í knattspyrnu í sumar með 28 stig, vann sjö leiki, gerði sjö jafntefli og tapaði átta leikjum. Liðið hafði leikið í Lengjudeildinni síðustu fjögur ár en lék í fyrsta skipti í 2. deild frá árinu 2010. Guðjón Þórðarson var þjálfari Víkings í sumar en hann tók við liðinu um mitt sumar á síðasta tímabili. Í byrjun vikunnar kom síðan tilkynning frá knattspyrnudeild Víkings þess efnis að Guðjón yrði ekki þjálfari liðsins á næsta tímabili. Blaðamaður heyrði í Guðjóni í síðustu viku og rifjaði það upp með honum að hann hefði sagt í viðtali við Skessuhorn í vor að markmiðið væri að tapa eins fáum leikjum og nokkur kostur væri. Þið byrjuðuð ekki vel í mótinu og voruð með aðeins tvö stig eftir fyrstu fjóra leikina. Voru menn ekki komnir í nægilega gott form í byrjun móts og var kannski um eitthvað vanmat að ræða?\r\n\r\n<strong>Vissi að þetta gæti orðið erfitt</strong>\r\n\r\n„Við fengum ekki liðið saman fyrr en í byrjun maí og svo fengum við viðbót af leikmönnum í júní þannig að við vorum seinir til. Andri Þór Sólbergsson okkar markahæsti leikmaður í sumar var búinn að vera meiddur í rúma tvo mánuði áður en mótið hófst og var búinn að æfa í aðeins viku þegar það byrjaði. Svo vorum við að fá útlendinga inn í mótið seint og um síðir. Við fengum níu stig úr fyrri umferðinni og nítján úr þeirri seinni og það segir allt sem segja þarf. Það var ekkert vanmat af minni hálfu, ég vissi alveg að ef hópurinn yrði eins og hann var í byrjun apríl gæti þetta orðið erfitt og liðið yrði þá í botnbaráttu miðað við þann mannskap sem þá var til staðar. Hópurinn var fámennur og alls ekki nógu sterkur í byrjun.“\r\n\r\n<em>Lengra viðtal við Guðjón Þórðarson, fráfarandi þjálfara Víkings, er að finna í nýjasta tölublaði Skessuhorns sem kom út í dag. </em>",
"innerBlocks": []
}