Sr. Heiðrún Helga Bjarnadóttir og sr. Þorbjörn Hlynur Árnason að lokinni messu í Borgarneskirkju á sunnudaginn. Ljósm. gj.

Kveðju- og innsetningarmessa í Borgarneskirkju

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Kveðjumessa séra Þorbjörns Hlyns Árnasonar og innsetningarmessa séra Heiðrúnar Helgu Bjarnadóttur var í Borgarneskirkju síðastliðinn sunnudag. Tekur Heiðrún Helga nú við starfi prests í Borgarprestakalli. Fjöldi fólks sótti athöfnina þar sem sr. Þorbjörn Hlynur þjónaði fyrir altari ásamt sr. Önnu Eiríksdóttur sóknarpresti í Stafholti. Í ræðu sinni þakkaði hann samstarfsfólki sínu þau rúm fjörutíu ár sem hann hefur þjónað sem prestur á Borg og bað því blessunar, sem og samferðarmönnum í Borgarfjarðarhéraði þennan langa tíma. Að lokinni athöfn var kirkjugestum boðið til kaffisamsætis á Hótel Borgarnesi.\r\n\r\nFrá árinu 1888 hafa einungis fjórir prestar setið á Borg á Mýrum þótt eitthvað hafi verið um afleysingar, svo sem þegar sr. Árni Pálsson leysti sr. Þorbjörn Hlyn son sinn af árin 1990-1995. Nú hefur kona tekið við embættinu í fyrsta sinn síðan kirkja var fyrst reist á Borg á Mýrum í upphafi kristni.\r\n\r\nPrestar sem setið hafa á Borg síðan árið 1888 eru þessir: Einar Friðgeirsson 1888-1929, Björn Magnússon 1929-1945, Leó Júlíusson 1946-1982 og Þorbjörn Hlynur Árnason 1982-2022.",
  "innerBlocks": []
}