
Báturinn Páll Helgi ÍS sökk í Stykkishólmi. Ljósm. Símon Már Sturluson.
Bátur sökk í Stykkishólmi
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Báturinn Páll Helgi ÍS sökk við Skipavíkurbryggju í Stykkishólmi í óveðrinu sem reið yfir um síðustu helgi. Kjartan Kjarvalsson hafnarvörður sagði í samtali við Skessuhorn í dag, að verið væri að hífa bátinn upp. ,,Þetta er gamall trébátur og var hann ónýtur fyrir. Þegar gerir vestanátt eru bátar við þessa bryggju í hættu en þetta gerðist í óveðrinu núna aðfararnótt sunnudags. Það er ekki hægt að segja nákvæmlega af hverju báturinn sökk en annað hvort kom of mikill sjór yfir hann eða að báturinn sem var fyrir aftan hann hafi lent á honum. Það sést ekki fyrr en búið er að hífa hann upp. Við urðum varir við þetta klukkan tíu mínútur í tvö um nóttina og tuttugu mínútum síðar var hann farinn niður. BB & synir og Köfunarþjónustan eru að hífa hann upp ásamt krananum sem hífði prammann upp í Ólafsvík um daginn,“ sagði Kjartan í samtali við Skessuhorn.",
"innerBlocks": []
}