
Félagar í Briddsfélagi Borgarfjarðar hafa ákveðið að hefja vetrarstarfið næstkomandi mánudag. „Mánudaginn 26. september byrjum við spilaveturinn í Logalandi. Spilaður verður léttur tvímenningi. Byrjum klukkan 20:00,“ segir í tilkynningu.Lesa meira

Félagar í Briddsfélagi Borgarfjarðar hafa ákveðið að hefja vetrarstarfið næstkomandi mánudag. „Mánudaginn 26. september byrjum við spilaveturinn í Logalandi. Spilaður verður léttur tvímenningi. Byrjum klukkan 20:00,“ segir í tilkynningu.Lesa meira

Fyrir tæpum tveimur árum hóf Dalabyggð viðræður við ríkið um að færa Byggðasafn sitt frá Laugum í Sælingsdal að Staðarfelli á Fellsströnd. Kristján Sturluson, þáverandi sveitarstjóri, sendi bréf til mennta- og menningarmálaráðuneytisins, sem þá var, í febrúar 2021 þess efnis að húsnæði byggðasafnsins á Laugum væri úr sér gengið. Þar væri hætta á vatnstjóni vegna…Lesa meira

Síðastliðinn föstudag var byrjað að steypa brúargólfið á brúnni yfir Þorskafjörð í Reykhólasveit. Það er steypt í einu lagi og var tekinn fyrir helmingur brúarinnar, 130 metrar, í þessum áfanga. Stefnt er að síðari áfanginn verður steyptur eftir tvo mánuði ef tíðarfar verður hagstætt. Í þennan hluta fóru um 1.300 rúmmetrar af steypu. Steypustöð frá…Lesa meira

Fyrsti leikur Snæfells á þessu keppnistímabili í 1. deild kvenna í körfuknattleik verður í kvöld á móti KR í Stykkishólmi og hefst leikurinn klukkan 19.15. Í gærkveldi tóku leikmenn meistaraflokka Snæfells rölt um hverfi bæjarins og seldu ársmiða en hann er gríðarlega mikilvæg fjáröflun fyrir félagið. Árleg spá formanna, þjálfara og fyrirliða liðanna í deildinni…Lesa meira

Smábátafélagið Elding starfar á norðanverðum Vestfjörðum. Á aðafundi félagsins nýverið var samþykkt ályktun þess efnis að krefjast þess að öll reiknilíkön sem Hafrannsóknastofnun notar til ákvörðunar um ráðleggingu um heildarafla, verði rannsökuð af óháðri nefnd sem í muni sitja fiskifræðingar sem ekki starfa hjá Hafró og síðan sjómenn sem stunda alls kona fiskveiðar við Íslandsstrendur.…Lesa meira

Félag kvenna í atvinnulífinu (FKA) heldur ráðstefnu á Akureyri föstudaginn 23. september þar sem fundarefnið verður; „ríkidæmi landsbyggðarinnar.“ Ráðstefnan ber nafnið Eldhugar en fyrirlesarar verða konur um allt land sem hafa hugrekki og víðsýni að vopni og hafa náð að töfra fram spennandi nýsköpun og tækifæri, segir í tilkynningu frá FKA. „Við fáum að heyra…Lesa meira

Rætt við Særúnu Lísu Birgisdóttur sem hóf söfnun fyrir útgáfukostnaði bókar sinnar Særún Lísa Birgisdóttir er að gefa úr bókina Hættið þessu fikti strákar! Bókin fjallar um homma á Íslandi allt frá tímum Íslendingasagnanna og fram til eftirstríðsáranna og byggir hún á bæði BA- og MA- ritgerðum Lísu í þjóðfræði en Lísa kláraði meistaranám sitt…Lesa meira

Borgnesingurinn Bjarki Pétursson var sá eini af fimm íslenskum kylfingum sem tóku þátt í úrtökumótum fyrir DP Evrópumótaröðina í síðustu viku sem komst áfram á 2. stigið. Bjarki lék vel á mótinu sem fram fór í Austurríki og lék alls 72 holur á sjö höggum undir pari. Hann tryggði sér þátttökurétt á næsta móti sem…Lesa meira

Nú hefur stórvirkur krani verið fenginn til að lyfta dýpkunarprammanum sem hálfsökk í Rifshöfn á mánudaginn. Grafan á prammanum er um 70 tonn að þyngd en auk húss sem hýsir rafstöð og prammans sjálfs er þyngdin um eða yfir 80 tonn. Pramminn var smíðaður 1995 og er af gerðinni Confloat. Ber hann nafnið Svavar. Hagtak…Lesa meira

Nú er tíminn þar sem helst er stunduð verslun með sauðfé og geitfé – í flestum tilfellum ásetningslömb. “Mjög mikilvægt er að hafa í huga að ákveðnar reglur gilda varðandi flutning sauðfjár bæði innan varnarhólfa og milli þeirra. Reglur þessar eru settar til þess að hindra útbreiðslu sjúkdóma og ber riðuveikina þar hæst. Það er…Lesa meira