Fréttir

true

Yfir hundrað laxar komnir á land úr Flekkudalsá

Veiðin togast áfram þessa dagana; vatnið er gott í ánum en víða mætti vera meiri fiskur. Tíðindamaður Skessuhorns heyrði í veiðimönnum sem voru að koma annars vegar úr Flekkudalsá á Fellsströnd og hins vegar úr Gljúfurá í Borgarfirði. „Við fengum einn lax og einn sjóbirting, svo sem ekki mikil veiði en veðrið var gott,“ sögðu…Lesa meira

true

Sljákkar í Hvítá síðan í gær

Flóðið í Hvítá náði hámarki í nótt eftir mikið vatnsveður á svæðinu auk þess sem hlýindi undanfarinna daga hafa orsakað talsverðar leysingar. Eitthvað hefur sljákkað í ánni síðan, en Almannavarnir fylgjast vel með stöðunni vegna mögulegs flóðs úr Hafrafellslóni við Langjökul, svipað og gerðist fyrir tveimur árum. Þá náði vatnið næstum upp á brúargólfið við…Lesa meira

true

Séra Aðalsteinn tekur við tímabundið af séra Óskari Inga

Séra Óskar Ingi Ingason lét af störfum í lok júlí í Ólafsvíkur- og Ingjaldshólsprestakalli og er orðinn sóknarprestur í Noregi. Mánudaginn 8. ágúst síðastliðinn tók séra Aðalsteinn Þorvaldsson við prestakallinu tímabundið en fyrir er séra Aðalsteinn sóknarprestur í Setbergsprestakalli í Grundarfirði. Hann hefur gegnt því starfi frá árinu 2008 og mun nú sinna báðum prestaköllum.…Lesa meira

true

Samþykktu málefnasamning sveitarstjórnar

Á fundi sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar í síðustu viku var lagður fram og samþykktur samstarfs- og málefnasamningur sveitarstjórnar fyrir kjörtímabilið 2022 til 2026. Fram kemur á heimasíðu Hvalfjarðarsveitar að samningurinn sé leiðarstef sveitarstjórnarfulltrúa sem ætla að vinna sem ein heild í átt að ennþá betra sveitarfélagi. Meðal þess sem sveitarstjórn hyggst stuðla að er gott upplýsingaflæði til…Lesa meira

true

Ásókn í land undir vindmyllur

Á undanförnum árum hafa talsverðar umræður verið um starfsemi vindorkuvera á Vesturlandi og fyrirætlanir fjárfesta þar að lútandi. Orðið vindorkuver kom fyrst fyrir í íslensku máli á áttunda áratug síðustu aldar þó orðið vindorka sé mun eldra. Til gamans má geta þess að við umræðu um virkjanakosti árið 1981 nefndi Þjóðviljinn að langódýrasti virkjanakosturinn væri…Lesa meira

true

„Þetta er eiginlega það skemmtilegasta sem ég geri“

Ari Bjarnason starfar sem tannlæknir í Ólafsvík og hefur gert síðastliðin 26 ár. Ungur ætlaði hann að læra verkfræði og verða flugvélaverkfræðingur en ákvað við lok menntaskóla að læra frekar tannlækningar. Ari var ekki par hrifinn af Karíusi og Baktusi þegar hann var polli og var frekar hræddur við þá bræður. Sú hræðsla hefur ef…Lesa meira

true

Spiluðum oft á tíðum góðan fótbolta

Rætt við Sölva G. Gylfason þjálfara Skallagríms um tímabilið í sumar Skallagrímur úr Borgarnesi varð í þriðja sæti í A riðli í 4. deild karla í knattspyrnu í sumar með 33 stig, vann ellefu leiki og tapaði þremur. Liðið var aðeins tveimur stigum frá liði Árbæjar sem hafnaði í öðru sæti riðilsins og tryggði sér…Lesa meira

true

Golfklúbburinn Mostri vann Vestarr í Rydernum

Golfklúbburinn Mostri úr Stykkishólmi og Golfklúbburinn Vestarr frá Grundarfirði áttust við á laugardaginn í seinni umferð í Rydernum og fór viðureignin fram á Bárarvellinum í Grundarfirði. Völlurinn var í toppstandi og var spilað við frábærar aðstæður. Sigurvegarar að þessu sinni voru Mostra menn og tóku glaðir með sér bikarinn heim.Lesa meira

true

Framúrskarandi námsmenn hljóta styrki HÍ

Nýverið tóku fjörutíu framúrskarandi námsmenn við Háskóla Íslands við styrkjum úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta skólans. Þeir koma úr 14 framhaldsskólum og hafa skráð sig til náms í nærri 30 mismunandi námsleiðir. Athygli vekur að enginn þessara fjörutíu styrkþega útskrifuðust úr framhaldsskólunum á Vesturlandi. Styrkþegar nú koma úr 14 framhaldskólum á landinu og í hópi…Lesa meira

true

Fjölmennt í töðugjaldareið

Um sjötíu manns fögnuðu töðugjöldum í Stafholtstungum síðastliðinn föstudag en rík hefð er fyrir því í sveitinni að fara í reiðtúr þennan dag. Töðugjöld eru uppskeruhátíð bænda þar sem haldið er upp á að heyskap sé almennt lokið og getur fögnuðurinn verið í hvers kyns formi. Í Stafholtstungum er til að mynda safnast saman á…Lesa meira