{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Flóðið í Hvítá náði hámarki í nótt eftir mikið vatnsveður á svæðinu auk þess sem hlýindi undanfarinna daga hafa orsakað talsverðar leysingar. Eitthvað hefur sljákkað í ánni síðan, en Almannavarnir fylgjast vel með stöðunni vegna mögulegs flóðs úr Hafrafellslóni við Langjökul, svipað og gerðist fyrir tveimur árum. Þá náði vatnið næstum upp á brúargólfið við brúna fyrir ofan Húsafell. Meðfylgjandi mynd er tekin þar kl. 11.46 í dag af myndavél sem Elmar Snorrason á Leirá hefur komið fyrir og Veðurstofan fylgist grannt með (www.ellisnorra.is). Svæðið er áfram í vöktun en hlaup er ekki hafið enn. Á vef Veðurstofu kemur fram að mikilvægt sé að vera á varðbergi gagnvart mögulegu hlaupi úr Hafrafellslóni þótt ekki sé reiknað með skemmdum á mannvirkjum. Á ýmsum stöðum fyrir neðan Hvítárbrúna við Húsafell hafði hlaupið árið 2020 nokkur áhrif, t.d. flæddi upp á engi við Brúarás sem stendur við brúna við Bjarnastaði og Sóra-Ás. Fólki sem er á ferð við Svartá eða dvelur á bökkum Hvítár, t.d. veiðimönnum, stafar mest hætta af hlaupinu og verður því að vera á varðbergi gagnvart hækkandi vatnsyfirborði. Íbúum á svæðinu er einnig bent á að huga að mögulegum áhrifum hlaups á eignir og búfénað nærri bökkum Hvítár.",
"innerBlocks": []
}