Töðugjaldareiðin fer úr hlaði Bakkakots þar sem hópurinn safnaðist saman en riðið var þaðan áfram á næstu bæi fram eftir kvöldi.

Fjölmennt í töðugjaldareið

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Um sjötíu manns fögnuðu töðugjöldum í Stafholtstungum síðastliðinn föstudag en rík hefð er fyrir því í sveitinni að fara í reiðtúr þennan dag. Töðugjöld eru uppskeruhátíð bænda þar sem haldið er upp á að heyskap sé almennt lokið og getur fögnuðurinn verið í hvers kyns formi. Í Stafholtstungum er til að mynda safnast saman á hestbaki og riðið í stórum hópi á milli bæja þar sem veigar og veitingar bíða. Undanfarin mörg ár hefur svo tónlistarmaðurinn Geirmundur Valtýsson spilað fyrir dansi ásamt hljómsveit í Samkomuhúsinu við Þverárrétt og lét hann sig ekki vanta í ár þrátt fyrir 78 ára aldur.",
  "innerBlocks": []
}