
Ingunn Óladóttir með flottan lax úr Flekkudalsá úr veiðistað númer 10. Ljósm. vv
Yfir hundrað laxar komnir á land úr Flekkudalsá
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Veiðin togast áfram þessa dagana; vatnið er gott í ánum en víða mætti vera meiri fiskur. Tíðindamaður Skessuhorns heyrði í veiðimönnum sem voru að koma annars vegar úr Flekkudalsá á Fellsströnd og hins vegar úr Gljúfurá í Borgarfirði.\r\n\r\n„Við fengum einn lax og einn sjóbirting, svo sem ekki mikil veiði en veðrið var gott,“ sögðu veiðimennirnir um veiðina í Flekkudalsá og bættu við; „Flekkan var að skríða yfir 100 laxa og slatti af birtingi hefur veiðst, en það var hellingur af laxi frá brú og upp úr, en hann hefði mátt taka betur hjá okkur, en svona er veiðin,“ sögðu veiðimenninir í Flekkudalsánni.\r\n\r\n,,Við fengum fimm laxa í Gljúfurá í Borgarfirði og eru komnir yfir 200 laxar á land,“ sagði Jóhann Gísli Hermannsson sem var að koma úr ánni. Hann bætir við að þetta hafi verið fínn veiðitúr. „Svo vorum við í Búðardalsá um daginn og fengum 18 laxa. Það er alltaf verið að veiða eitthvað,“ bætti Jóhann Gísli við.",
"innerBlocks": []
}