
Sölvi G. Gylfason fráfarandi þjálfari Skallagríms. Ljósm. vaks
Spiluðum oft á tíðum góðan fótbolta
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "<strong>Rætt við Sölva G. Gylfason þjálfara Skallagríms um tímabilið í sumar</strong>\r\n\r\nSkallagrímur úr Borgarnesi varð í þriðja sæti í A riðli í 4. deild karla í knattspyrnu í sumar með 33 stig, vann ellefu leiki og tapaði þremur. Liðið var aðeins tveimur stigum frá liði Árbæjar sem hafnaði í öðru sæti riðilsins og tryggði sér þar með sæti í úrslitakeppninni á kostnað Skallagríms. Það er ljóst að á næsta ári mun Skallagrímur leika í 5. deild, sjöttu efstu deild, en í ár eru 25 ár liðin frá því þegar félagið lék í efstu deild Íslandsmótsins árið 1997. Sölvi G. Gylfason var spilandi þjálfari Skallagríms þriðja árið í röð í sumar en liðið féll úr þriðju deild árið 2019. Blaðamaður Skessuhorns heyrði í Sölva varðandi tímabilið sem nú er nýlokið og innti hann eftir því þegar hann sagði í viðtali við Skessuhorn í vor að markmiðið væri að ná einu af tveimur fyrstu sætunum í riðlinum. Sölvi segir að það sé mjög fúlt að hafa misst af því og það sem hafi einfaldlega klikkað var að þeir töpuðu mikilvægustu leikjunum og því fór sem fór. Þetta hafi verið afar svekkjandi en svona væri fótboltinn stundum.\r\nEn hvað var Sölvi ánægðastur með eftir tímabilið og hvað ekki? „Ég var ánægðastur með að við spiluðum oft á tíðum góðan fótbolta og náðum að halda pressu á liðin fyrir ofan okkur allt fram í síðustu umferð. Einnig að margir ungir leikmenn fengu tækifæri. Ég var í rauninni ekki óánægður með neitt, menn gerðu sitt besta og það er ekki hægt að vera fúll með það.“\r\n\r\n<em>Viðtalið við Sölva G. Gylfason þjálfara Skallagríms má finna í heild sinni í nýjasta tölublaði Skessuhorns sem kom út í gær.</em>",
"innerBlocks": []
}