Fréttir

true

Björn Viktor Íslandsmeistari unglinga í holukeppni

Í gær fóru fram úrslit á Íslandsmóti unglinga í holukeppni í golfi og átti Golfklúbburinn Leynir á Akranesi þrjá kylfinga sem kepptu til úrslita. Björn Viktor Viktorsson gerði sér lítið fyrir og vann sinn úrslitaleik og er því Íslandsmeistari unglinga í holukeppni í flokki 19-21 árs. Er þetta fyrsti Íslandsmeistaratitill hans í unglingaflokki. Guðlaugur Þór…Lesa meira

true

Sundkrakkar í æfingaferð á Spáni

Dagana 5.-15. ágúst dvaldi afrekshópur Sundfélags Akraness í æfingabúðum á Calella á Spáni ásamt nokkrum iðkendum frá Ungmennafélaginu Aftureldingu en samstarf hefur verið farsælt á milli félaganna í nokkurn tíma. Alls fóru 17 sundkrakkar með í ferðina ásamt tveimur fararstjórum og þremur þjálfurum. Morgun- og seinnipartsæfingar fóru fram flesta daga og því allmargir kílómetrar sem…Lesa meira

true

Ný vefsíða sveitarfélagsins komin í loftið

Ný og uppfærð vefsíða sameinaðs sveitarfélags Stykkishólmsbæjar og Helgafellssveitar hefur nú verið tekin í gagnið. Með nýrri síðu er leitast eftir því að upplýsingar verði aðgengilegri, viðmót auðveldara og nýjar veflausnir nýttar. Fundargerðir eru nú felldar inn í síðuna og notendum gefin kostur á að vakta málsnúmer. Síðan er unnin upp úr gömlu vefsíðu Stykkishólmsbæjar…Lesa meira

true

Baski byrjaður að mála sitt vegglistaverk

Listamaðurinn Baski hófst handa fyrir helgi að mála vegglistaverk með bryggju- og bátastemningu á vegg mjölgeymslu Brims niður við höfn á Akranesi. Blaðamaður Skessuhorns truflaði Baska við iðju sína eftir hádegið á mánudaginn og spurði hann hvernig gengi? „Mjög vel, ég byrjaði á föstudaginn með að mála vegginn hvítan, síðan teiknaði ég um helgina og…Lesa meira

true

Lions færði Lífsbjörgu peningagjöf

Lionsklúbbur Ólafsvíkur færði nú í vikunni Björgunarsveitinni Lífsbjörgu 500.000 krónur að gjöf. Eru peningarnir ætlaðir til bílakaupa sem björgunarsveitin ákvað að ráðast í síðstliðið vor. Voru félagsmenn Lífsbjargar ánægðir með þessa góðu gjöf og sögðu hana kærkomna. Á myndinni er hluti af stjórnarmeðlimum Lionsklúbbs Ólafsvíkur ásamt stjórn Lífsbjargar þegar gjöfin var afhent. Á myndinni eru…Lesa meira

true

Vilja íslensku í tungumálaforritið Duolingo

Hópur fólks á Íslandi vinnur nú að undirskriftasöfnun til þess að skora á Duolingo að taka inn íslensku inn sem tungumál. Duolingo er tungumálaforrit sem býður upp á eitt fjölbreyttasta tungumálanám í heiminum og er feykivinsælt. Notendur Duolingo geta sótt sér smáforrit í snjallsímann sér að kostnaðarlausu og geta þá með einföldum hætti valið sér…Lesa meira

true

Grunur um eldislax í vestfirskri á

Matvælastofnun barst tilkynning síðastliðinn föstudag vegna laxa sem veiddir voru í á á Vestfjörðum en grunur er um að um eldislax sé að ræða. Starfsmenn Fiskistofu og Matvælastofnunar fóru á staðinn og tóku sýni sem send voru til Hafrannsóknastofnunar til erfðagreiningar. Atvikið er til meðferðar hjá Matvælastofnun, en frekari upplýsingar verða veittar þegar niðurstöður erfðagreiningar…Lesa meira

true

Lengri opnun í Akranesvita

Á fundi bæjarráðs Akraneskaupstaðar 25. ágúst sl. var samþykkt sú breyting á opnunartíma á upplýsingamiðstöð ferðamanna við Akranesvita að hún verði opin virka daga í sex klukkustundir á dag. Í sumar hefur verið opið í upplýsingamiðstöðinni frá klukkan 12 til 16. Nýr opnunartími gildir frá 1. september til og með 30. apríl næstkomandi.Lesa meira

true

Ásmundur Einar í heimsókn á Akranesi

Síðasta fimmtudag kom Ásmundur Einar Daðason mennta- og barnamálaráðherra í heimsókn á Akranes ásamt fulltrúum frá ráðuneytinu og Barna- og fjölskyldustofu. Tilgangur heimsóknarinnar var að kynna og ræða stöðu innleiðingar farsældarlaganna (lög um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna nr. 86/2021) á Akranesi. Er Akraneskaupstaður eitt af fjórum frumkvöðlasveitarfélögum í innleiðingarferlinu í samstarfi við Barna-…Lesa meira

true

Framkvæmdir við Deildartunguhver

Síðustu vikur hafa staðið yfir framkvæmdir á aðkomu við Deildartunguhver í Reykholtsdal. Ný möl hefur verið lögð í bílastæðin, þökulagt hefur verið í kringum hverinn og hellulagt í og við hús Veitna á staðnum. Verkið framkvæmir Garðþjónustan Sigur-garðar.Lesa meira