
Fyrstu drög vegglistaverksins. Ljósm. vaks
Baski byrjaður að mála sitt vegglistaverk
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Listamaðurinn Baski hófst handa fyrir helgi að mála vegglistaverk með bryggju- og bátastemningu á vegg mjölgeymslu Brims niður við höfn á Akranesi. Blaðamaður Skessuhorns truflaði Baska við iðju sína eftir hádegið á mánudaginn og spurði hann hvernig gengi? „Mjög vel, ég byrjaði á föstudaginn með að mála vegginn hvítan, síðan teiknaði ég um helgina og hóf í morgun að mála. Ég byrjaði miklu fyrr í raun og veru þegar ég fékk hugmyndina í Hollandi og gerði teikningu.“\r\n\r\nUm myndina segir Baski að þetta verði Akranes í fortíð og framtíð, hafnarlífið á bryggjunni og svo eru ýmis kennileiti tengd við Skagann í verkinu. „Litirnir í verkinu eru mikið frumlitirnir, þetta er vísindalega uppbyggt. Þetta er stíll sem ég notaði mikið fyrir mörgum árum og var búinn að þróa hann talsvert. Hvíldi hann í einhvern tíma og hugsaði svo með mér varðandi þetta vegglistaverk að byrja að nota hann aftur. Þetta byggir soldið á jafnvægi í litum og fjarvídd og er einföldun í stíl.“\r\n\r\nSpurður hvenær hann hyggist ljúka verkinu segir Baski að ef allt gangi vel taki þetta um tíu daga en það fari allt eftir veðri og hann verði að treysta á gott veður. „Ég fer ekki heim aftur til Hollands fyrr en ég hef lokið verkinu og vonandi verða veðurguðirnir með mér í liði.“",
"innerBlocks": []
}