Frá vinstri: Ásmundur Einar, Sólveig, Dagný og Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri. Ljósm. akranes.is

Ásmundur Einar í heimsókn á Akranesi

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Síðasta fimmtudag kom Ásmundur Einar Daðason mennta- og barnamálaráðherra í heimsókn á Akranes ásamt fulltrúum frá ráðuneytinu og Barna- og fjölskyldustofu. Tilgangur heimsóknarinnar var að kynna og ræða stöðu innleiðingar farsældarlaganna (lög um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna nr. 86/2021) á Akranesi. Er Akraneskaupstaður eitt af fjórum frumkvöðlasveitarfélögum í innleiðingarferlinu í samstarfi við Barna- og fjölskyldustofu. Sólveig Sigurðardóttir verkefnastjóri samþættrar þjónustu og Dagný Hauksdóttir verkefnastjóri á mennta- og menningarsviði héldu kynningu á stöðu verkefnisins. Að því loknu voru umræður um tækifæri og áskoranir við innleiðingu á lögum í þágu farsældar barna.\r\n\r\nFram kemur á vef Akraneskaupstaðar að á fundinn hafi mætt fulltrúar frá leik- og grunnskóla, FVA og kjörnir fulltrúar ásamt starfsmönnum Akraneskaupstaðar sem koma að innleiðingu farsældarlaganna með einum eða öðrum hætti.",
  "innerBlocks": []
}
Ásmundur Einar í heimsókn á Akranesi - Skessuhorn