Logi Sigurðsson, Björn Viktor og Arnór Tjörvi Þórsson. Ljósm. golf.is

Björn Viktor Íslandsmeistari unglinga í holukeppni

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Í gær fóru fram úrslit á Íslandsmóti unglinga í holukeppni í golfi og átti Golfklúbburinn Leynir á Akranesi þrjá kylfinga sem kepptu til úrslita. Björn Viktor Viktorsson gerði sér lítið fyrir og vann sinn úrslitaleik og er því Íslandsmeistari unglinga í holukeppni í flokki 19-21 árs. Er þetta fyrsti Íslandsmeistaratitill hans í unglingaflokki. Guðlaugur Þór Þórðarson og Vala María Sturludóttir sem kepptu til úrslita í flokki 13-14 ára höfnuðu í öðru sæti í sínum aldursflokki og fengu því silfur.\r\n\r\nAlls tóku sjö keppendur frá Leyni þátt en aðeins 16 stigahæstu kylfingar tímabilsins í hverjum aldursflokki fá keppnisrétt á þessu móti. Aðrir keppendur Leynis á mótinu voru þau Elsa Maren Steinarsdóttir, Tristan Freyr Traustason og Kári Kristvinsson sem féllu öll úr leik í átta manna úrslitum og Nói Claxton sem féll úr leik í 16 manna úrslitum.",
  "innerBlocks": []
}
Björn Viktor Íslandsmeistari unglinga í holukeppni - Skessuhorn