
Græna uglan er einkennismerki Duolingo tungumálaforritsins. Ljósm. Duolingo
Vilja íslensku í tungumálaforritið Duolingo
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Hópur fólks á Íslandi vinnur nú að undirskriftasöfnun til þess að skora á Duolingo að taka inn íslensku inn sem tungumál. Duolingo er tungumálaforrit sem býður upp á eitt fjölbreyttasta tungumálanám í heiminum og er feykivinsælt.\r\n\r\nNotendur Duolingo geta sótt sér smáforrit í snjallsímann sér að kostnaðarlausu og geta þá með einföldum hætti valið sér það tungumál sem þeir vilja læra en Duolingo býður upp á nám í 41 tungumáli. Í forritinu er t.d. að finna fjölbreyttar málfræðiæfingar, hljóðbrot og framburðaræfingar. Árið 2021 voru mánaðarlegir notendur forritsins að meðaltali 37 milljónir.\r\n\r\nJón Gnarr, leikari og fyrrverandi borgarstjóri, gengur svo langt í <a href=\"https://www.facebook.com/jongnarr\">færslu</a> sinni á Facebook að fullyrða að það sé líklega það besta sem Íslendingar geti gert fyrir velferð og bjarta framtíð íslenskunnar, að gera hana aðgengilega á Duolingo.\r\n\r\nEkki er hægt að neita því að íslenskan á undir högg að sækja í hinum stafræna heimi og eru nú í gangi fjölmörg máltækniverkefni sem snúa að því að gera íslensku aðgengilegri og auka notagildi hennar á stafrænum vettvangi. Því er fullyrðing Jóns Gnarrs kannski ekki svo fjarri lagi.\r\n\r\nHægt er að skrifa undir áskorunina <a href=\"https://www.change.org/p/duolingo-persuade-duolingo-to-offer-icelandic-as-a-course?fbclid=IwAR0QEGNueBdCrZgAsxIHY5PSlhxhEbKAGIvIV1rZ3Apcnme_rzlrQUz27u0\">hér.</a>",
"innerBlocks": []
}