Fréttir

true

Íbúðarbyggð í dreifbýli og lögheimili í frístundabyggðum

Í fundargerð byggðarráðs Borgarbyggðar í síðustu viku kemur fram að fyrirspurnum vegna íbúðarbyggðar í dreifbýli annars vegar og flutnings lögheimilis í frístundabyggðir hins vegar hafi fjölgað að undanförnu. Ráðið ræddi málið og bókaði að ánægjulegt væri að sífellt fleiri kysu að búa um skemmri eða lengri tíma í sveitarfélaginu. Hröð fjölgun starfa án staðsetningar og…Lesa meira

true

Starfshópur um vindorku kallar eftir sjónarmiðum

Starfshópur um vindorku, sem Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, skipaði í sumar kallar nú eftir sjónarmiðum hagaðila, sveitarfélaga, félagasamtaka og almennings á málefnum vindorku. Starfshópurinn hefur þegar hafið störf, en hann hefur það verkefni að skoða og gera tillögur til ráðherra um nýtingu vindorku, þ.á m. um lagaumhverfi hennar og hvernig verði tekið á…Lesa meira

true

Vel heppnað skemmtikvöld Slysavarnadeildar Dalasýslu

Slysavarnadeild Dalasýslu hélt skemmtikvöld föstudaginn 26. ágúst í Sælureitnum Árbliki. Þar sýndi Lalli töframaður töfrabrögð, Gísli Einarsson var með uppistand og Guðmundur Bæringsson frá Þorbergsstöðum í Dölum spilaði á gítar og söng með gestum langt fram eftir kvöldi. Það var góð stemning í salnum og fólk greinilega tilbúið að koma saman og skemmta sér. „Við…Lesa meira

true

Inga Dóra ráðin framkvæmdastjóri Brákarhlíðar

Inga Dóra Halldórsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri hjúkrunar- og dvalarheimilisins Brákarhlíðar í Borgarnesi. Tekur hún við starfinu af Birni Bjarka Þorsteinssyni sem ráðinn hefur verið sveitarstjóri Dalabyggðar. Inga Dóra hefur starfað sem framkvæmdastjóri Símenntunarmiðstöðvarinnar á Vesturlandi frá því árið 2006. Fram kemur í tilkynningu frá stjórn Brákarhlíðar að alls bárust 17 umsóknir þegar starfið var…Lesa meira

true

Grótta og ÍA gerðu jafntefli í úrslitakeppni 2. deildar kvenna

Á föstudagskvöldið mættust lið Gróttu og ÍA í úrslitakeppni sex efstu liða í 2. deild kvenna í knattspyrnu og fór viðureignin fram á Vivaldivellinum á Seltjarnarnesi. María Lovísa Jónasdóttir kom Gróttu yfir eftir tæpan hálftíma leik en Erla Karitas Jóhannesdóttir jafnaði metin á 37. mínútu fyrir ÍA og þannig var staðan í hálfleik. Leikmönnum beggja…Lesa meira

true

Heiða Björg er nýr formaður SÍS

Heiða Björg Hilmisdóttir, varaformaður Sambands íslenskra sveitarfélaga og borgarfulltrúi, verður næsti formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga. Samkvæmt samþykktum sambandsins fór kosning formanns fram dagana 15. – 29. ágúst sl. Auk Heiðu Bjargar bauð Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri í Hafnarfirði, sig fram til að gegna embætti formanns næstu fjögur árin. Heiða Björg tekur við embættinu af Aldísi Hafsteinsdóttur…Lesa meira

true

Þriðja jafntefli Víkings í röð með markatölunni 3-3

Víkingur Ólafsvík tók á móti KF í Ólafsvík á laugardaginn í 2. deild karla í knattspyrnu. Fyrri hálfleikur var með allra fjörugasta móti því alls voru skoruð fimm mörk og það voru gestirnir sem komust yfir á elleftu mínútu með marki frá Cameron Botes. En á aðeins fjögurra mínútna kafla eftir hálftíma leik gerðust ótrúlegir…Lesa meira

true

Kári kominn í fimmta sætið eftir sigur á KH

KH og Kári mættust á laugardaginn í 3. deild karla í knattspyrnu á Valsvellinum við Hlíðarenda og lauk leiknum með sigri Kára, lokatölur 0-1. Það var markahrókurinn Andri Júlíusson sem skoraði sigurmarkið undir lok fyrri hálfleiks og var þetta tólfta mark hans í deildinni í sumar. Kári komst með sigrinum í fimmta sæti deildarinnar eftir…Lesa meira

true

Skagamenn á sigurbraut

Oliver Stefánsson var hetja Skagamanna þegar hann skoraði sigurmarkið undir lok leiksins í 0-1 sigri á Keflavík í Bestu deild karla í knattspyrnu suður með sjó í gær. Þetta var annar sigur ÍA í röð sem fóru úr neðsta sæti deildarinnar í það næst neðsta með þessum sigri og gefur þeim aukna von um að…Lesa meira

true

Stafróf fuglanna er ný bók ætluð börnum

Bókaútgáfan Hólar hefur gefið út nýja bók sem nefnist Stafróf fuglanna. Höfundur texta og ljósmynda er Árni Árnason Hafstað. Bókin er ætluð börnum sem eru farin að sýna stöfum og orðum áhuga og hafa náð þeim þroska að geta lært að lesa. Jafnframt er kverinu ætlað að kynna börnum algenga fugla sem sjást í náttúru…Lesa meira