Víða í dreifbýli er nú verið að byggja hús í skilgreindum frístundabyggðum sem uppfylla í raun öll skilyrði til heilsársbúsetu. Myndin er tekin í nýju hverfi sem nú er að rísa í Húsafelli. Ljósm. mm.

Íbúðarbyggð í dreifbýli og lögheimili í frístundabyggðum

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Í fundargerð byggðarráðs Borgarbyggðar í síðustu viku kemur fram að fyrirspurnum vegna íbúðarbyggðar í dreifbýli annars vegar og flutnings lögheimilis í frístundabyggðir hins vegar hafi fjölgað að undanförnu. Ráðið ræddi málið og bókaði að ánægjulegt væri að sífellt fleiri kysu að búa um skemmri eða lengri tíma í sveitarfélaginu. Hröð fjölgun starfa án staðsetningar og heilsársfrístundahús ýtti undir þessa þróun. Ekki lægi hins vegar fyrir nýtt kostnaðar- og ábatamat, né mat á félagslegum áhrifum þess að taka frekari skref í þá átt að fjölga íbúðarhúsnæði á svæðum sem nú eru skilgreind í dreifbýli.\r\n\r\nByggðarráð telur að slíkt mat þurfi að liggja fyrir áður en ný svæði verða samþykkt, sem hafa ekki áður fengið samþykki sveitarstjórnar og fer þess á leit við sveitarstjóra að gera slíkt mat eða hafa frumkvæði að því að það verði gert á samstarfsvettvangi sveitarfélaga. Sveitarstjóri mun á næsta fundi byggðarráðs leggja fram drög að minnisblaði um hvernig þeirri vinnu verði háttað.",
  "innerBlocks": []
}
Íbúðarbyggð í dreifbýli og lögheimili í frístundabyggðum - Skessuhorn