
Félagsheimilið Árblik í Dölum. Ljósm. dalir.is
Vel heppnað skemmtikvöld Slysavarnadeildar Dalasýslu
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Slysavarnadeild Dalasýslu hélt skemmtikvöld föstudaginn 26. ágúst í Sælureitnum Árbliki. Þar sýndi Lalli töframaður töfrabrögð, Gísli Einarsson var með uppistand og Guðmundur Bæringsson frá Þorbergsstöðum í Dölum spilaði á gítar og söng með gestum langt fram eftir kvöldi. Það var góð stemning í salnum og fólk greinilega tilbúið að koma saman og skemmta sér. „Við erum mjög ánægð með kvöldið, það var vel heppnað og góð mæting. Við höfum samt fundið það núna á viðburðum eftir Covid að það er aðeins minni mæting heldur en var fyrir Covid en við erum ánægð með mætinguna og erum mjög þakklát fyrir þá sem mættu og þá sem mæta alltaf og styrkja okkur.“ Segir Stefanía Björg Jónsdóttir, meðlimur í Slysavarnadeild Dalasýslu, en hún kom að skipulagningu skemmtikvöldsins. „Við vorum að einblína á mjög blandaðan hóp gesta og okkur tókst að ná til sem flestra með þessum fjölbreyttu skemmtiatriðum. Svo vorum við líka með happdrætti sem var styrkt af frábærum fyrirtækjum í heimasveit og utan sveitarfélagsins og við erum auðvitað mjög þakklát fyrir þeirra stuðning. Og svo fá staðarhaldarar Árbliks líka sérstakar þakkir fyrir hlýjar móttökur.“\r\n\r\nSlysavarnadeildin fékk styrk frá Menningarmálaverkefnasjóði Dalabyggðar, til þess að halda þetta skemmtikvöld og segir Stefanía að aðalhlutverk kvöldsins hafi í raun ekki verið fjáröflunin. „Okkur finnst aðalmálið í raun vera að ná samfélaginu saman og geta létt okkur stundirnar. Sérstaklega í ljósi þess hvernig síðustu tvö ár hafa verið út af Covid faraldrinum þá viljum við reyna að peppa fólk og gera eitthvað gott fyrir það.“ Segir Stefanía Björg.\r\n\r\nGísli Einarsson hélt uppistand fyrir gesti en raunar ætti kannski heldur að kalla það niðursetu. „Já Gísli Einarsson hafði samband við okkur áður en hann kom og vildi athuga hvort það væri nokkuð mál fyrir hann að fá stól upp á svið fyrir sig. Það var ekkert mál og við héldum bara að hann ætlaði að vera með eitthvað atriði þar sem hann þyrfti stólinn.“ Þegar Gísli svo mætti um kvöldið studdist hann við hækjur og annar fóturinn var í gifsi. „Þá mætti hann bara fótbrotinn. Hann hafði fótbrotnað bara um þrjú-fjögurleytið sama dag og tók það ekki í mál að missa af því að skemmta Dalamönnum. Þannig hann mætti bara með hækjurnar og gat auðvitað gert mikið grín að sjálfum sér.“ Segir Stefanía Björg.\r\n\r\nFram eftir kvöldi var svo ýmist setið og dillað sér eða staðið og dansað á meðan Guðmundur Bærings spilaði og söng. „Ég hef heyrt út undan mér að það sé bara almenn ánægja með þetta kvöld, fólk talar vel um það og það gerir okkur svo glaðar að aðrir hafi skemmt sér því við skemmtum okkur mjög vel.“\r\n\r\nSlysavarnadeildin er blandaður hópur allra kynja og allir eru velkomnir að vera með í því mikilvæga starfi sem deildin sinnir. Megin markmið deildarinnar er að vera til staðar í fjölþættu hjálparstarfi og segir Stefanía að þetta sér staður til að láta gott af sér leiða. „Þetta starf er fyrir þá aðila sem hafa kannski ekki heilsu eða tök á að sinna líkamlega erfiðu björgunarstarfi en vilja taka þátt og láta gott af sér leiða. Við í Slysavarnadeildinni aðstoðum björgunarsveitina með því til dæmis að nesta hana fyrir útköll og svo erum við til staðar í almennu hjálparstarfi, setjum upp fjöldahjálparstöð í samvinnu við Rauða Krossinn o.þ.h.“ Segir Stefanía Björg að lokum.\r\n\r\n ",
"innerBlocks": []
}