{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Bókaútgáfan Hólar hefur gefið út nýja bók sem nefnist Stafróf fuglanna. Höfundur texta og ljósmynda er Árni Árnason Hafstað. Bókin er ætluð börnum sem eru farin að sýna stöfum og orðum áhuga og hafa náð þeim þroska að geta lært að lesa. Jafnframt er kverinu ætlað að kynna börnum algenga fugla sem sjást í náttúru landsins, ýmist allt árið eða að sumarlagi. En gefum höfundi orðið:\r\n\r\n„Bókin er ekki samin með ákveðna lestrarkennsluaðferð í huga heldur er gengið út frá því að foreldrar og kennarar geti beitt ýmsum aðferðum við að nota hana sem lestrarkennslubók. Bókin er í grundvallaratriðum hugsuð sem hefðbundið stafrófskver. Stafirnir eru kynntir í stafrófsröð og á síðunni á móti er ljósmynd af fugli sem tengist stafnum eða orðunum sem koma á eftir stafakynningunni. Þá koma 2-3 stuttar setningar sem tengjast fuglinum eða eru á einhvern hátt einkennandi fyrir hann. Þessar setningar eru á eðlilegu máli þótt reynt sé að hafa þar orð sem byrja á eða fela í sér staf sem kynntur er hverju sinni. Í kverinu kemur á fjórða tug algengra fugla við sögu, staðfuglar og farfuglar auk eins flækings. Flestir þessara fugla sjást hér á landi allt árið en aðrir aðeins aðsumarlagi. Myndirnar af fuglunum eru allar teknar á undanförnum árum í því umhverfi sem fuglarnir halda sig. Ljósmyndirnar ættu að auðvelda börnum að þekkja þessa algengu fugla, skýra ýmislegt í sambandi við lifnaðarhætti þeirra eða hegðun og gera börnin læsari á náttúruna í nágrenni okkar. Ef börnin læra íslensku stafina, kynnast algengum fuglum í leiðinni og læra jafnframt að lesa einföld orð og setningar sem tengjast lífi fuglanna þá er tilganginum náð með útgáfu kversins,“ segir Árni Árnason Hafstað.",
"innerBlocks": []
}
Stafróf fuglanna er ný bók ætluð börnum - Skessuhorn