
Andri Júlíusson skoraði sigurmarkið gegn KH. Ljósm. Kári
Kári kominn í fimmta sætið eftir sigur á KH
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "KH og Kári mættust á laugardaginn í 3. deild karla í knattspyrnu á Valsvellinum við Hlíðarenda og lauk leiknum með sigri Kára, lokatölur 0-1. Það var markahrókurinn Andri Júlíusson sem skoraði sigurmarkið undir lok fyrri hálfleiks og var þetta tólfta mark hans í deildinni í sumar. Kári komst með sigrinum í fimmta sæti deildarinnar eftir sinn þriðja sigur í síðustu fjórum leikjum en á enga möguleika á því að komast upp um deild. Mikil spenna er í efri hlutanum en þar er Sindri efstur með 38 stig, Dalvík/Reynir í öðru sæti með 37 stig og á leik inni á hin liðin þrjú, KFG er með 36 stig og Víðir með 35 stig í fjórða sætinu.\r\n\r\nNæsti leikur Kára er næsta föstudag á móti næst neðsta liði deildarinnar Vængjum Júpíters í Akraneshöllinni og hefst klukkan 19.15.",
"innerBlocks": []
}