Sundkrakkar í æfingaferð á Spáni

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Dagana 5.-15. ágúst dvaldi afrekshópur Sundfélags Akraness í æfingabúðum á Calella á Spáni ásamt nokkrum iðkendum frá Ungmennafélaginu Aftureldingu en samstarf hefur verið farsælt á milli félaganna í nokkurn tíma. Alls fóru 17 sundkrakkar með í ferðina ásamt tveimur fararstjórum og þremur þjálfurum. Morgun- og seinnipartsæfingar fóru fram flesta daga og því allmargir kílómetrar sem hver sundmaður synti í ferðinni. Mikil áhersla var lögð á sundtækni og var sundfólkið t.d. myndað, bæði í kafi og frá bakka til að koma auga á hvar það þyrfti að bæta sig til að ná betri árangri. Einnig syntu krakkarnir með púlsmæla svo þjálfarar gátu kortlagt álag út frá hverjum og einum.\r\n\r\nMargt var einnig gert sér til skemmtunar eins og að fara í vatnsleikjagarð, á ströndina og ýmislegt fleira. Hitinn var mikill á Spáni á þessum tíma, eða vel yfir 30 gráður nær alla dagana og þurfti hópurinn því að gæta sín vel til að hafa orku á öllum æfingum, drekka mikinn vökva og brenna ekki í sólinni.\r\n\r\nCalella á Spáni, sem er í um 50 km fjarlægð frá Barcelona, er vinsæll áfangastaður fyrir sundfélög víða að úr heiminum enda öll aðstaða til fyrirmyndar. Á sama tíma og Sundfélag Akraness var á staðnum æfðu félög frá Færeyjum og Svíþjóð í lauginni ásamt iðkendum úr sunddeild Stjörnunnar og frá Íþróttabandalagi Reykjanesbæjar.\r\n\r\nDugnaðurinn var allsráðandi hjá okkar efnilega sundfólki og ferðin frábært upphaf á komandi sundtímabili.\r\n\r\n<em>- Guðrún Guðbjarnadóttir</em>",
  "innerBlocks": []
}
Sundkrakkar í æfingaferð á Spáni - Skessuhorn