{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Nýverið tóku fjörutíu framúrskarandi námsmenn við Háskóla Íslands við styrkjum úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta skólans. Þeir koma úr 14 framhaldsskólum og hafa skráð sig til náms í nærri 30 mismunandi námsleiðir. Athygli vekur að enginn þessara fjörutíu styrkþega útskrifuðust úr framhaldsskólunum á Vesturlandi. Styrkþegar nú koma úr 14 framhaldskólum á landinu og í hópi þeirra eru 15 dúxar og semidúxar. Styrkupphæð hvers og eins nemur 375 þúsund krónum og heildarupphæð styrkjanna því 15 milljónir króna.\r\n\r\nAfreks- og hvatningarsjóður stúdenta Háskóla Íslands hefur allt frá árinu 2008 veitt styrki til nýnema sem náð hafa framúrskarandi árangri í námi til stúdentsprófs og jafnframt látið til sín taka á öðrum sviðum, svo sem í félagsstörfum í framhaldsskóla eða listum og íþróttum. Sjóðurinn styrkir einnig nemendur sem hafa sýnt fádæma seiglu og þrautseigju og hafa, þrátt fyrir erfiðar aðstæður, staðið sig afar vel í námi. Styrkþegar frá upphafi eru yfir 400. Auglýst var eftir umsóknum um styrki í vor og hafa þær aldrei verið fleiri.",
"innerBlocks": []
}