Séra Aðalsteinn Þorvaldsson. Ljósm. tfk

Séra Aðalsteinn tekur við tímabundið af séra Óskari Inga

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Séra Óskar Ingi Ingason lét af störfum í lok júlí í Ólafsvíkur- og Ingjaldshólsprestakalli og er orðinn sóknarprestur í Noregi. Mánudaginn 8. ágúst síðastliðinn tók séra Aðalsteinn Þorvaldsson við prestakallinu tímabundið en fyrir er séra Aðalsteinn sóknarprestur í Setbergsprestakalli í Grundarfirði. Hann hefur gegnt því starfi frá árinu 2008 og mun nú sinna báðum prestaköllum.\r\n\r\nSkessuhorn heyrði í séra Aðalsteini varðandi þessar breytingar og segir hann að hann hafi ekki upplýsingar um það hvað þetta myndi vara lengi en verið sé að vinna í þessum málum. „Í vikunni kom tillaga frá biskupafundi, sem er stjórnsýslustig innan kirkjunnar, um sameiningu prestakallanna á norðanverðu Snæfellsnesi. Það þýðir ekki að það sé verið að segja okkur að það sé verið að sameina, heldur er þetta tillaga sem síðan þarf að fara fyrir kirkjuþing. Ég hins vegar vænti þess og vona að það verði ráðinn prestur í Ólafsvíkur- og Ingjaldshólsprestakall og að starfið verði auglýst fljótlega.“\r\n\r\n<em>Í nýjasta tölublaði Skessuhorns sem kom út í dag má finna lengra viðtal við Séra Aðalstein auk viðtals við Pétur Georg Markan biskupsritara á Biskupsstofu.</em>",
  "innerBlocks": []
}
Séra Aðalsteinn tekur við tímabundið af séra Óskari Inga - Skessuhorn