Ari Bjarnason er hér á heimavelli á tannlæknastofu sinni í Ólafsvík.

„Þetta er eiginlega það skemmtilegasta sem ég geri“

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Ari Bjarnason starfar sem tannlæknir í Ólafsvík og hefur gert síðastliðin 26 ár. Ungur ætlaði hann að læra verkfræði og verða flugvélaverkfræðingur en ákvað við lok menntaskóla að læra frekar tannlækningar. Ari var ekki par hrifinn af Karíusi og Baktusi þegar hann var polli og var frekar hræddur við þá bræður. Sú hræðsla hefur ef til vill haft einhver áhrif á hans ákvörðun um að gerast tannlæknir síðar meir. Ari ólst upp á Þórólfsgötu í Borgarnesi, fór í nám til Akureyrar, Reykjavíkur og Oslóar og ætlaði að setjast þar að og verða Norðmaður. Svo fór að hann kom aftur til Íslands eftir stutt stopp í Noregi, flutti til Búðardals og síðan til Ólafsvíkur þar sem hann ætlaði að starfa sem tannlæknir í tvö ár. Ari ílengdist hins vegar í Ólafsvík og er þar enn 26 árum seinna. Hann segist hafa það ótrúlega gott í Ólafsvík, það sé alltaf gaman í vinnunni og kúnnahópurinn sé skemmtilegur.\r\n\r\n<em>Lesa má opnuviðtal við Ara Bjarnason í nýjasta tölublaði Skessuhorns sem kom út í dag. </em>\r\n\r\n&nbsp;\r\n\r\n&nbsp;",
  "innerBlocks": []
}
„Þetta er eiginlega það skemmtilegasta sem ég geri“ - Skessuhorn