
Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar ásamt Lindu Björk Pálsdóttur sveitarstjóra. Ljósm hvalfjardarsveit.is
Samþykktu málefnasamning sveitarstjórnar
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Á fundi sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar í síðustu viku var lagður fram og samþykktur samstarfs- og málefnasamningur sveitarstjórnar fyrir kjörtímabilið 2022 til 2026. Fram kemur á heimasíðu Hvalfjarðarsveitar að samningurinn sé leiðarstef sveitarstjórnarfulltrúa sem ætla að vinna sem ein heild í átt að ennþá betra sveitarfélagi. Meðal þess sem sveitarstjórn hyggst stuðla að er gott upplýsingaflæði til íbúa, landeigenda, frístundahúsaeigenda og annarra hagsmunaaðila og í því skyni mun sveitarstjórn reglulega birta fréttabréf á heimasíðu sveitarfélagsins ásamt því að áformað er að haldnir verði upplýsingafundir um einstök málefni.\r\n\r\nÁfram verður unnið að stafrænni þróun og vinnu að jafnréttismálum verður framhaldið sem og að þjónusta við fjölskyldur og einstaklinga haldi áfram að haldast í hendur við uppbyggingu samfélagsins. Sveitarstjórn vill koma á opnu samtali við eldri borgara með stofnun öldungaráðs og stefnt er að þátttöku í verkefninu Barnvæn sveitarfélög. Staðinn verður vörður um þann veglega frístundastyrk sem sveitarfélagið býður upp á ásamt því að skoðað verður hvort unnt sé að koma á laggirnar aukafrístundastyrk til tekjulágra heimila. Sveitarstjórn vill að Félagsmiðstöðin 301 haldi áfram öflugu starfi fyrir mið- og unglingastig og að reglulega séu haldin námskeið í sveitarfélaginu svipað og gert var á vorönn 2022 fyrir börn á yngsta stigi.\r\n\r\nHvað varðar fræðslumál vill sveitarstjórn sjá að haldið verði áfram því öfluga starfi sem unnið er að í leik- og grunnskóla Hvalfjarðarsveitar, leikskólinn Skýjaborg verði áfram gjaldfrjáls leikskóli frá kl. 9-14 og 25% afsláttur á fæðisgjaldi í leik- og grunnskóla verði áfram. Á kjörtímabilinu mun sveitarstjórn leggja áherslu á uppbyggingu með stöðugu og fjölbreyttu lóðaframboði ásamt því að tryggja að innviðir sveitarfélagsins ráði við íbúafjölgun en meðal þeirra verkefna er að vinna áfram með skýrslu starfshóps frá apríl 2022 er varðar framtíðarsýn í leikskólamálum. Áætlað er að byggingarframkvæmdir á nýju leikskólahúsnæði í Melahverfi geti hafist í kjölfar byggingar nýs íþróttahúss við Heiðarborg. Útivistarsvæðið í Melahverfi er á framkvæmdaáætlun og eru vonir bundnar við að hægt verði að fagna opnun þess á Hvalfjarðardögum 2023.\r\n\r\nÞá segir einnig að samstarfs- og málefnasamningurinn sé ekki tæmandi listi yfir stefnumál sveitarstjórnar enda ýmis ófyrirsjáanleg verkefni sem koma upp á hverju kjörtímabili en sveitarstjórn sem heild vill hafa það að markmiði að takast á við allar áskoranir og verkefni með hag íbúa sveitarfélagsins í öndvegi. „Sveitarstjórnarfulltrúar munu leggja sig fram um að hlusta á íbúa og hvetur sveitarstjórn íbúa, landeigendur, frístundahúsaeigendur og aðra hagsmunaaðila til þess að senda inn ábendingar til sveitarstjórnar. Sveitarstjórnarfulltrúar halda af stað í kjörtímabilið og vegferðina framundan full af bjartsýni og jákvæðni og hlakka til að vinna fyrir sveitarfélagið okkar allra í góðu samstarfi og samvinnu.“",
"innerBlocks": []
}