Fréttir

true

Aldrei fleiri nemendur í Menntaskóla Borgarfjarðar

Í haust eru 172 nemendur skráðir í nám við Menntaskóla Borgarfjarðar og hafa aldrei verið fleiri þótt skólinn hafi einu sinni komist nálægt tölunni fyrir rúmum tíu árum. Síðan þá hefur nemendafjöldi verið á bilinu 116 til 155, en frá haustinu 2020 hefur hann stefnt markvisst upp á við. Að sögn Braga Þórs Svavarssonar skólameistara…Lesa meira

true

Sofið við Norðurljós í Melasveit

Fyrirtækið Panorama Glass Lodge ehf hefur fest kaup á um tuttugu hektara landi austarlega í landi Hafnar í Melasveit. Þar hyggst fyrirtækið reka gæða gistiþjónustu í nokkurs konar glerskálum. Fyrirtækið er til heimilis á Suðurlandi og hefur þegar reist nokkur slík hús í nágrenni Hellu. Landið sem hér um ræðir er í Melasveit í Borgarfirði,…Lesa meira

true

Erlendum nemendum fjölgar í Háskólagáttinni á Bifröst

Liðlega 1.200 nemendur hefja nám við Háskólann á Bifröst í haust og það er Viðskiptadeild sem er lang fjölmennasta háskóladeildin. Athyglisvert er að skráningum hjá Háskólagátt skólans fjölgaði um 80% og eru nú samtals 45 nemendur skráðir þar. Háskólagáttin undirbýr nemendur fyrir grunnnám á háskólastigi. Rekja má aukninguna að hluta til þess að hún er…Lesa meira

true

Formleg opnun nýrrar skurðstofu á sjúkrahúsi HVE á Akranesi

Fimmtudaginn 25. ágúst heimsótti Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi í tilefni af formlegri opnun nýrrar skurðstofu á sjúkrahúsinu. Auk þess átti ráðherra fund með framkvæmdastjórn. Starfsmenn komu saman til að fagna opnun skurðstofunnar og þeim stóra áfanga sem náðst hefur á síðustu 15 mánuðum með langþráðum endurbótum á húsnæði og búnaði á…Lesa meira

true

Þriðja konan til að klifra Fred Flintstone

Skagastúlkan Sylvía Þórðardóttir jafnaði sinn besta árangur í útiklifri um liðna helgi þegar hún klifraði leiðina „Fred Flintstone“ í Miðskjóli á Hnappavöllum. Hún varð þar með þriðja konan til að klifra leiðina. Leiðin er önnur leiðin af gráðunni 7b sem Sylvía klifrar, en áður hafði hún klifrað leiðina „Leikið á Als oddi“ sem ber sömu…Lesa meira

true

Nýtt hús rís brátt í Ólafsvík fyrir starf eldri borgara

Fyrsta skóflustungan að húsi eldri borgara í Snæfellsbæ var tekin á fimmtudaginn. Hana tók elsti íbúi Snæfellsbæjar, Vigfús Vigfússon húsasmiður. Snæfellsbær keypti húsið sem fer á grunninn, en það er um 500 fermetrar að stærð og var áður notað af Hjallastefnunni í Öskjuhlíð í Reykjavík, byggt árið 2010 af SG húsum á Selfossi og flutt…Lesa meira

true

Kveðjuhóf fór fram í Þinghamri

Um þessar mundir eru 50 ár liðin frá því að bygging Félagsheimilisins Þinghamars í Stafholtstungum hófst og 40 ár liðin síðan húsið var tekið í notkun. Húsnefnd bauð til kaffisamsætis í tilefni þess, en einnig þar sem Guðmundur Finnsson, sem sinnt hefur starfi húsvarðar frá upphafi, lætur nú af störfum. Fékk hann sérstakan þakklætisvott fyrir…Lesa meira

true

Yfir hundrað laxar komnir á land úr Flekkudalsá

Veiðin togast áfram þessa dagana; vatnið er gott í ánum en víða mætti vera meiri fiskur. Tíðindamaður Skessuhorns heyrði í veiðimönnum sem voru að koma annars vegar úr Flekkudalsá á Fellsströnd og hins vegar úr Gljúfurá í Borgarfirði. „Við fengum einn lax og einn sjóbirting, svo sem ekki mikil veiði en veðrið var gott,“ sögðu…Lesa meira

true

Sljákkar í Hvítá síðan í gær

Flóðið í Hvítá náði hámarki í nótt eftir mikið vatnsveður á svæðinu auk þess sem hlýindi undanfarinna daga hafa orsakað talsverðar leysingar. Eitthvað hefur sljákkað í ánni síðan, en Almannavarnir fylgjast vel með stöðunni vegna mögulegs flóðs úr Hafrafellslóni við Langjökul, svipað og gerðist fyrir tveimur árum. Þá náði vatnið næstum upp á brúargólfið við…Lesa meira

true

Séra Aðalsteinn tekur við tímabundið af séra Óskari Inga

Séra Óskar Ingi Ingason lét af störfum í lok júlí í Ólafsvíkur- og Ingjaldshólsprestakalli og er orðinn sóknarprestur í Noregi. Mánudaginn 8. ágúst síðastliðinn tók séra Aðalsteinn Þorvaldsson við prestakallinu tímabundið en fyrir er séra Aðalsteinn sóknarprestur í Setbergsprestakalli í Grundarfirði. Hann hefur gegnt því starfi frá árinu 2008 og mun nú sinna báðum prestaköllum.…Lesa meira