Fjöldi gesta mætti við athöfnina.

Nýtt hús rís brátt í Ólafsvík fyrir starf eldri borgara

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Fyrsta skóflustungan að húsi eldri borgara í Snæfellsbæ var tekin á fimmtudaginn. Hana tók elsti íbúi Snæfellsbæjar, Vigfús Vigfússon húsasmiður. Snæfellsbær keypti húsið sem fer á grunninn, en það er um 500 fermetrar að stærð og var áður notað af Hjallastefnunni í Öskjuhlíð í Reykjavík, byggt árið 2010 af SG húsum á Selfossi og flutt í einingum á nýjan byggingarstað. Hús af þessari gerð eru hönnuð þannig að auðvelt er að flytja þau og skipta þeim upp í smærri hús þar sem hver stofa er sér eining.\r\n\r\nAð sögn Kristins Jónassonar bæjarstjóra er nú unnið við að taka húsið niður og mun það væntanlega verða flutt til Ólafsvíkur fljótlega í næsta mánuði. Húsið verður reist á lóðinni Ólafsbraut 23, við hlið Landsbankans, og mun verða notað undir starfsemi eldri borgara í sveitarfélaginu. Húsið þykir henta vel undir slíkt félagsstarf þar sem það er á einni hæð og skipt upp í fjórar vinnustofur, með góðu alrými í miðjunni. Annað sambærilegt hús hefur verið keypt og verður því fundinn staður á Lýsuhóli. „Verið er að skoða að nota hluta þess fyrir stækkun á Lýsuhólsskóla. Einnig eru nokkrar hugmyndir í vinnslu um notkun á restinni af húsinu. Hönnunin og smíðin á húsunum gera okkur kleift að skoða ýmsa möguleika á notkun þeirra,“ segir Ragnar Már Ragnarsson bæjartæknifræðingur í samtali við Skessuhorn.\r\n\r\nSamið var við verktaka í Reykjavík um að taka húsin í sundur og gera þau klár fyrir flutning. „Sömu aðilar munu einnig reisa þau og ganga frá þeim að utan. Snæfellsbær mun svo sjá um frágang þeirra að innan. Eðlilega fylgir því töluvert rask að taka svona hús í sundur en reynt var eftir fremsta megni að gera það á sem snyrtilegastan hátt þannig að frágangsvinnan verði sem minnst,“ segir Ragnar Már.",
  "innerBlocks": []
}