
Tekið í mötuneytinu MB í byrjun vikunnar. Þar var vel mætt eða um 80 nemendur sem borðuðu pastarétt saman í góðum gír.
Aldrei fleiri nemendur í Menntaskóla Borgarfjarðar
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Í haust eru 172 nemendur skráðir í nám við Menntaskóla Borgarfjarðar og hafa aldrei verið fleiri þótt skólinn hafi einu sinni komist nálægt tölunni fyrir rúmum tíu árum. Síðan þá hefur nemendafjöldi verið á bilinu 116 til 155, en frá haustinu 2020 hefur hann stefnt markvisst upp á við.\r\n\r\nAð sögn Braga Þórs Svavarssonar skólameistara má greina mikinn meðbyr með skólanum þessi misserin. Þróunarverkefni skólans vekur mikla athygli og er greinilegt að sú framtíðarsýn sem þar kemur fram vekur áhuga nemenda og aðstandenda auk skólasamfélagsins. Mikill hluti fjölgunar nemenda er til kominn vegna aukningar í fjarnámi sem kallar á breytt vinnubrögð og er skemmtileg áskorun fyrir skólann. Um leið og fjölgun er í fjarnáminu má finna fyrir auknum áhuga á staðnámi og aukin sérstaða skólans ásamt áformum um byggingu nemendagarða mun stuðla að enn frekari fjölgun staðnema.\r\n\r\nÞegar skólinn hóf störf haustið 2007 var hann byggður upp á annan hátt en flestir skólar á þeim tíma. Boðið var upp á nám til stúdentsprófs á þremur árum og hefðbundin próf voru lögð niður en skyndipróf og verkefnaskil komu í þeirra stað. Jafnframt þessu var sérstök áhersla lögð á upplýsingatækni. Fyrsti skólameistari MB var Ársæll Guðmundsson og á eftir honum tóku þær Kolfinna Jóhannesdóttir og Guðrún Björg Aðalsteinsdóttir við keflinu þar til Bragi Þór Svavarsson var ráðinn í starfið haustið 2019. Þess skal getið að Lilja S. Ólafsdóttir hefur verið aðstoðarskólameistari og þar með hægri hönd skólameistara frá upphafi.",
"innerBlocks": []
}