
Ljósm. Klifurfélag Akraness
Þriðja konan til að klifra Fred Flintstone
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Skagastúlkan Sylvía Þórðardóttir jafnaði sinn besta árangur í útiklifri um liðna helgi þegar hún klifraði leiðina „Fred Flintstone“ í Miðskjóli á Hnappavöllum. Hún varð þar með þriðja konan til að klifra leiðina. Leiðin er önnur leiðin af gráðunni 7b sem Sylvía klifrar, en áður hafði hún klifrað leiðina „Leikið á Als oddi“ sem ber sömu gráðu, en „Als odd“ klifraði hún einungs fjórtán ára að aldri.\r\n\r\nLeiðin hefst á erfiðu klifri upp létt yfirhangandi vegg, á tæpum tökum og krefst mikils styrks og jafnvægis. Sylvía eyddi góðum tíma í að fínstilla allar hreyfingar til þess að komast gegnum erfiðasta hluta leiðarinnar og að honum loknum kláraði hún leiðina örugglega upp í topp.\r\n\r\nSylvía undirbýr sig nú undir þátttöku á Norðurlandamótinu í línuklifri sem fram fer 24. september í Helsinki, en frá Klifurfélagi ÍA fara einnig þær Þórkatla Þyrí Sturludóttir og Beníta Líf Pálsdóttir, sem keppa í B-flokki stúlkna.",
"innerBlocks": []
}