
Guðmundur Finnsson afhenti arftaka sínum, Sigrúnu Sigurðardóttur, formlega lyklana að Þinghamri við athöfnina.
Kveðjuhóf fór fram í Þinghamri
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Um þessar mundir eru 50 ár liðin frá því að bygging Félagsheimilisins Þinghamars í Stafholtstungum hófst og 40 ár liðin síðan húsið var tekið í notkun. Húsnefnd bauð til kaffisamsætis í tilefni þess, en einnig þar sem Guðmundur Finnsson, sem sinnt hefur starfi húsvarðar frá upphafi, lætur nú af störfum. Fékk hann sérstakan þakklætisvott fyrir 40 ára starf sitt en Sigrún Sigurðardóttir tekur nú við lyklavöldum í Þinghamri. Jón Þór Jónasson, Þorvaldur Tómas Jónsson og Pétur Oddsson fengu einnig viðurkenningu fyrir framlag sitt til byggingarinnar en Jón Þór stóð fyrir byggingu hússins og Pétur sinnti starfi yfirsmiðs á meðan á byggingunni stóð. Nafnið Þinghamar bar sigur úr býtum í atkvæðakosningu á sínum tíma en Þorvaldur lagði nafnið til í kosninguna. Þess má til gamans geta að nafnið Veggjaborg hafnaði í öðru sæti en yfir sjötíu tillögur bárust í nafnakeppnina. Nú er unnið að því að merkja húsið með nafni þess og ártali en Kvenfélag Stafholtstungna, Björgunarsveitin Heiðar, Ungmennafélag Stafholtungna ásamt Leikdeild Umf. Stafholtstungna gefa merkinguna sem Límtré Vírnet smíðar.",
"innerBlocks": []
}