Bifröst. Ljósm. úr safni

Erlendum nemendum fjölgar í Háskólagáttinni á Bifröst

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Liðlega 1.200 nemendur hefja nám við Háskólann á Bifröst í haust og það er Viðskiptadeild sem er lang fjölmennasta háskóladeildin.\r\n\r\nAthyglisvert er að skráningum hjá Háskólagátt skólans fjölgaði um 80% og eru nú samtals 45 nemendur skráðir þar. Háskólagáttin undirbýr nemendur fyrir grunnnám á háskólastigi. Rekja má aukninguna að hluta til þess að hún er einnig í boði á ensku og er hér um einkar jákvæða þróun að ræða í námsframboði fyrir erlent enskumælandi fólk hér á landi.\r\n\r\nNám í Háskólagátt fer fram í lotubundnu fjarnámi og er lánshæft hjá Menntasjóði námsmanna. Það er ætlað fullorðnum nemendum og býr nemendur undir grunnnám á háskólastigi við allar deildir Háskólans á Bifröst. Námið veitir einnig undirstöðumenntun á framhaldsskólastigi sem eykur samkeppnishæfni einstaklinga á vinnumarkaði.\r\n\r\nNámið er skipulagt þannig að nemendur í fullu námi ljúka því á einu skólaári. Nemendur geta þó valið að taka námið á lengri tíma. Ef það er gert samhliða vinnu skrá þeir sig í námsleiðina Háskólagátt með vinnu.",
  "innerBlocks": []
}
Erlendum nemendum fjölgar í Háskólagáttinni á Bifröst - Skessuhorn