Heilbrigðisráðherra fékk kynningu á tólum og tækjum skurðstofunnar. Ljósm. vaks

Formleg opnun nýrrar skurðstofu á sjúkrahúsi HVE á Akranesi

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Fimmtudaginn 25. ágúst heimsótti Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi í tilefni af formlegri opnun nýrrar skurðstofu á sjúkrahúsinu. Auk þess átti ráðherra fund með framkvæmdastjórn. Starfsmenn komu saman til að fagna opnun skurðstofunnar og þeim stóra áfanga sem náðst hefur á síðustu 15 mánuðum með langþráðum endurbótum á húsnæði og búnaði á handlækninga- og lyflækningadeild sem nú er lokið. Rétt 70 ár eru nú liðin frá því Sjúkrahúsið á Akranesi tók til starfa.\r\n\r\nHeilbrigðisráðherra ávarpaði samkomuna og fór Jóhanna Fjóla Jóhannesdóttir forstjóri HVE yfir tímalínu framkvæmdanna í máli og myndum. Þá tóku til máls Stefán Þorvaldsson yfirlæknir lyflækningadeildar, Birna Katrín Hallsdóttir deildarstjóri handlækningadeildar og Björn Gunnarsson yfirlæknir skurð- og svæfingadeildar.\r\n\r\n<em>Lesa má allt um þetta og sjá myndir af nýju skurðstofunni og formlegri opnun hennar í nýjasta tölublaði Skessuhorns sem út kom í dag.</em>",
  "innerBlocks": []
}