Fréttir

true

Íslenskir leigjendur ganga í Alþjóðasamtök leigjenda

Á fundi stjórnar Alþjóðasamtaka leigjenda sem haldinn var í Helsinki í Finnlandi 15. júní sl. var umsókn Samtaka leigjenda á Íslandi að samtökunum samþykkt. Íslensku leigjendasamtökin tengjast þar með öflugu neti sterkra leigjendasamtaka víða um lönd. „Ég trúi að þetta hafi verið heillaskref,“ segir Guðmundur Hrafn Arngrímsson formaður Samtaka leigjenda á Íslandi. „Það er mikilvægt…Lesa meira

true

KR og ÍA gerðu jafntefli í fjörugum leik

KR og ÍA áttust við í Bestu deild karla í knattspyrnu í gærkvöldi og fór leikurinn fram á heimavelli KR, Meistaravöllum. Fyrir landsleikjahlé höfðu liðin átt misjöfnu gengi að fagna í deildinni, KR-ingar höfðu unnið þrjá síðustu leiki af fjórum á meðan ÍA hafði tapað síðustu fjórum af fimm og ekki unnið KR í Vesturbænum…Lesa meira

true

Þolendum heimilisofbeldis auðveldað að fá skilnað

Mörg mál voru samþykkt á lokametrum Alþingis. Eitt þeirra var sérstaklega miðað að því að bæta stöðu þolenda heimilisofbeldis. Skilnaðarferlið verður auðveldað fyrir fólk sem hefur orðið fyrir ofbeldi af hálfu maka síns eða býr á heimili þar sem barn hefur verið beitt ofbeldi. Það er Viðreisn sem hafði veg og vanda að því að…Lesa meira

true

Ungviður plantar í Brynjudal

Skógræktarfélagið Ungviður hóf gróðursetningu á nýjum skógræktarreit sínum í Brynjudal í Hvalfirði í maí. Í sumar mun félagið efna til opinna gróðursetningardaga helgarnar 18.–19. júní, 16.–17. júlí og 20.–21. ágúst og býður alla áhugasama hjartanlega velkomna. Gróðursettar verða um tíu þúsund plöntur. Ungviður er skógræktarfélag sem vill auka þátttöku ungs fólks við að græða landið.…Lesa meira

true

Kjólar og ljósmyndir í gamla Iðnskólanum á Akranesi

Sýning á ljósmyndum og kjólum verður í gamla Iðnskólanum á Akranesi dagana 17. og 18. júní. Kjólarnir eru með myndum sem flestar eru teknar á Vesturlandi og þeir eru framleiddir undir heitinu LAUFEY. Efnið í kjólunum er unnið úr endurnýttum plastflöskum. Áskell Þórisson ljósmyndari tók myndirnar sem eru á kjólunum og sömuleiðis myndirnar sem munu…Lesa meira

true

Var yfirbugaður af lögreglu eftir að hafa stolið bíl og rafmagnshlaupahjóli

Um miðjan dag á þriðjudaginn í liðinni viku var tilkynnt um glæfraakstur ökumanns á Vesturlandsvegi og Hvítárvallavegi. Þegar lögreglan fór að kanna málið og rekja slóðina þá var hann kominn upp í Svignaskarð. Síðan tók hann rafmagnhlaupahjól ófrjálsri hendi og lagði á flótta á því sem leið lá til Borgarness. Á leiðinni þangað reyndi hann…Lesa meira

true

Jón Eiríkur kjörinn oddviti Skorradalshrepps

Laugardaginn 11. júní síðastliðinn hélt nýkjörin hreppsnefnd Skorradalshrepps sinn fyrsta fund eftir sveitarstjórnarkosningar. Pétur Davíðsson starfsaldursoddviti boðaði til fundarins sem fram fór á Hvanneyri. Fundinn sátu auk Péturs þau Jón Eiríkur Einarsson, Guðný Elíasdóttir, Óli Rúnar Ástþórsson og Kristín Jónsdóttir. Kosning oddvita til eins árs fór fram á fundinum og fór kosningin þannig að Jón…Lesa meira

true

Sigurbjörg kosin nýr oddviti

Fyrsti fundur hreppsnefndar Eyja- og Miklaholtshrepps eftir sveitarstjórnarkosningar var haldinn fimmtudaginn 2. júní síðastliðinn. Þröstur Aðalbjarnarson boðaði til fundarins vegna þess að hann er með lengstu setu í sveitarstjórn að baki af nýkjörnum sveitastjórnarmönnum. Fram kemur í fundargerð að loknum kosningum hafi kjörstjórn borist bréf frá Valgarð S. Halldórssyni þar sem hann tilkynnti að hann…Lesa meira

true

Kynntu niðurstöður umhverfisvöktunar á Grundartanga

Niðurstöður umhverfisvöktunar iðnaðarsvæðisins á Grundaratanga árið 2021 voru kynntar á opnum fundi Umhverfisstofnunar í gær. Umhverfisvöktun svæðisins fer fram samkvæmt umhverfisvöktunaráætlun sem gerð er samkvæmt starfsleyfum fyrirtækjanna á svæðinu og samþykkt er af Umhverfisstofnun. Þau fyrirtæki sem taka þátt í umhverfisvöktuninni eru Elkem Ísland, Norðurál Grundartanga og Alur Álvinnsla. Niðurstöður fyrir flúor og brennistein voru…Lesa meira

true

Lækkað lánshlutfall við fyrstu fasteignakaup

Til að gæta að viðnámsþrótti lántakenda og lánveitenda hefur fjármálastöðugleikanefnd Seðlabankans ákveðið að lækka hámark veðsetningarhlutfalls fasteignalána fyrir fyrstu kaupendur úr 90% í 85%. Hlutfallið fyrir aðra kaupendur verður óbreytt, eða 80%. „Nefndin hefur jafnframt ákveðið að setja viðmið um vexti við útreikning greiðslubyrðar í reglum um hámark greiðslubyrðar fasteignalána til neytenda. Viðmiðið verður að…Lesa meira