
Stjórn Alþjóðasamtaka leigjenda fagna Guðmundi Hrafni Arngrímssyni og Laufeyju Líndal Ólafsdóttur, fulltrúum Samtaka leigjenda á Íslandi, þegar þau fengu aðild að alþjóðasamtökunum.
Íslenskir leigjendur ganga í Alþjóðasamtök leigjenda
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Á fundi stjórnar Alþjóðasamtaka leigjenda sem haldinn var í Helsinki í Finnlandi 15. júní sl. var umsókn Samtaka leigjenda á Íslandi að samtökunum samþykkt. Íslensku leigjendasamtökin tengjast þar með öflugu neti sterkra leigjendasamtaka víða um lönd.\r\n\r\n„Ég trúi að þetta hafi verið heillaskref,“ segir Guðmundur Hrafn Arngrímsson formaður Samtaka leigjenda á Íslandi. „Það er mikilvægt fyrir ung og enn ómótuð samtök að geta sótt í reynslu þeirra sem eru komin lengra. Innan þessara samtaka eru félög sem hafa með baráttu sinni náð að umbylta húsnæðismarkaðnum í sínum löndum. Við munum sækja í reynslu þessa fólks.“\r\n\r\nÁ fundinum kynntu Guðmundur og Laufey Líndal Ólafsdóttir, stjórnarmaður í Samtökum leigjenda og Félagsbústöðum, íslenska leigumarkaðinn fyrir stjórnarmönnum Alþjóðasamtaka leigjenda. Skiljanlega var þeim nokkuð brugðið yfir hversu vanþroska hann er og hversu litla vernd leigjendur hafa. Á eftir fylgdu heitstrengingar um stuðning Alþjóðasamtakanna við baráttu leigjenda á Íslandi.\r\n\r\n„Í þessu hópi var öllum ljóst að frumforsenda bættrar stöðu leigjenda er öflug leigjendasamtök,“ sagði Guðmundur. „Félögum okkar fannst við hafa náð miklum árangri á skömmum tíma en voru líka meðvituð um að það er langur vegur framundan og einhverjar brekkur. Sumt af þessu fólki kemur á norrænt þing leigjenda sem við stöndum fyrir í Reykjavík í haust og þar verður sérstaklega rætt um baráttuna á Íslandi.“",
"innerBlocks": []
}