Sigurbjörg Ottesen oddviti Eyja- og Miklaholtshrepps. Ljósm. Gunnhildur Lind.

Sigurbjörg kosin nýr oddviti

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Fyrsti fundur hreppsnefndar Eyja- og Miklaholtshrepps eftir sveitarstjórnarkosningar var haldinn fimmtudaginn 2. júní síðastliðinn. Þröstur Aðalbjarnarson boðaði til fundarins vegna þess að hann er með lengstu setu í sveitarstjórn að baki af nýkjörnum sveitastjórnarmönnum. Fram kemur í fundargerð að loknum kosningum hafi kjörstjórn borist bréf frá Valgarð S. Halldórssyni þar sem hann tilkynnti að hann hefði flutt lögheimilið úr sveitarfélaginu og þar með misst kjörgengi til sveitarstjórnar. Einnig barst bréf frá Gísla Guðmundssyni þar sem hann baðst undan sæti í sveitarstjórn vegna aldurs. Í þeirra stað koma Þröstur Aðalbjarnarson og Sonja Karen Marinósdóttir og færast varamenn þá upp um sæti miðað við þá röðun sem þeir voru kjörnir til. Í kosningu til oddvita fékk Sigurbjörg Ottesen flest atkvæði og varaoddviti var kosin Herdís Þórðardóttir.",
  "innerBlocks": []
}
Sigurbjörg kosin nýr oddviti - Skessuhorn