Kynntu niðurstöður umhverfisvöktunar á Grundartanga
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Niðurstöður umhverfisvöktunar iðnaðarsvæðisins á Grundaratanga árið 2021 voru kynntar á opnum fundi Umhverfisstofnunar í gær. Umhverfisvöktun svæðisins fer fram samkvæmt umhverfisvöktunaráætlun sem gerð er samkvæmt starfsleyfum fyrirtækjanna á svæðinu og samþykkt er af Umhverfisstofnun. Þau fyrirtæki sem taka þátt í umhverfisvöktuninni eru Elkem Ísland, Norðurál Grundartanga og Alur Álvinnsla.\r\n\r\nNiðurstöður fyrir flúor og brennistein voru óvenju háar árið 2021 sem talið er tengjast staðsetningu mælistöðva, veðurfari og áhrifum frá eldgosinu í Geldingadölum. Niðurstöður umhverfisvöktunar iðnaðarsvæðisins á Grundartanga árið 2021 fyrir ferskvatn, gras, sjó og lífríki sjávar leiða í ljós að öll viðmiðunarmörk eru uppfyllt, sem sett eru í reglugerðum.\r\n\r\nLíkt og fyrri ár var sýnum fyrir flúormælingar safnað á síur á Kríuvörðu og Gröf II, auk þess sem mælingar voru gerðar á Hálsnesi, en þar er mælt þriðja hvert ár. Mælingar á styrk flúors í andrúmslofti á Kríuvörðu rúmlega tvöfaldaðist á milli ára og var umfram þau viðmiðunarmörk sem skilgreind eru í starfsleyfi Norðuráls. Styrkurinn er innan skilgreindra heilsuverndarmarka.\r\n\r\nÁ Gröf II og Hálsnesi var meðalstyrkur loftkennds flúors og heildarflúors í samræmi við mælingar fyrri ára og langt innan viðmiðunarmarka, auk þess sem aðrar loftgæðamælingar í andrúmslofti uppfylla öll viðmiðunarmörk í reglugerðum.\r\n\r\nStyrkur flúors á Kríuvörðu mældist hæstur í júni, júlí, ágúst og september en í þessum mánuðum ríktu þó nokkra daga suðvestanáttir í óvenjulega marga daga sem höfðu mikil áhrif á niðurstöðurnar á Kríuvörðu. Styrkurinn mældist hæstur 30. ágúst í suðvestan stinningsgolu.\r\n\r\nTil að bregðast við háum mælingum við Kríuvörðu var settur upp auka mælibúnaður á Kríuvörðu til samanburðar, til að tryggja áreiðanleika eldri búnaðar. Niðurstöður úr þeim mælingum eru væntanlegar. Norðurál óskaði jafnframt eftir að tekin yrðu auka barrsýni og vatnssýni þegar fyrstu niðurstöður lágu fyrir. Niðurstöður úr þeim sýnum voru allar innan marka.\r\n\r\nHjá Norðuráli eru símælingar í rjáfri og í háfum á styrk flúoríðs og mældist árleg losun flúors árið 2021 svipuð og undanfarin ár. Ekki er hægt að tengja háar mælingar við Kríuvörðu við truflanir eða frávik í rekstri. Búið er að framkvæma samanburðarmælingar á losunarmælum fyrirtækisins og reyndust þeir áreiðanlegir. Niðurstöður losunarmælinga Norðuráls eru ekki í samræmi við frávik í í mælingu flúros á Kríuvörðu og eru allar innan starfsleyfismarka.\r\n\r\nSkýrslur um niðurstöður vöktunarinnar er að finna á vefsíðu Umhverfisstofnunar, www.ust.is.\r\n\r\n<em>-fréttatilkynning</em>",
"innerBlocks": []
}
Kynntu niðurstöður umhverfisvöktunar á Grundartanga - Skessuhorn