Svipmynd úr Borgarnesi. Ljósm. mm.

Lækkað lánshlutfall við fyrstu fasteignakaup

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "<p class=\"MsoNormal\">Til að gæta að viðnámsþrótti lántakenda og lánveitenda hefur fjármálastöðugleikanefnd Seðlabankans ákveðið að lækka hámark veðsetningarhlutfalls fasteignalána fyrir fyrstu kaupendur úr 90% í 85%. Hlutfallið fyrir aðra kaupendur verður óbreytt, eða 80%.</p>\r\n<p class=\"MsoNormal\">„Nefndin hefur jafnframt ákveðið að setja viðmið um vexti við útreikning greiðslubyrðar í reglum um hámark greiðslubyrðar fasteignalána til neytenda. Viðmiðið verður að lágmarki 3% fyrir vexti verðtryggðra íbúðalána og 5,5% fyrir vexti óverðtryggðra íbúðalána. Aukinheldur hefur nefndin ákveðið að stytta hámarkslánstíma við útreikning greiðslubyrðar fyrir verðtryggð lán og miða þar við 25 ár. Breytingum á greiðslubyrðarhlutfalli er ætlað að efla áhættuvitund lántakenda við val þeirra milli lánsforma en greiðslubyrði verðtryggðra lána er hlutfallslega léttari í upphafi en þyngri eftir því sem líður á lánstímann. Markmið framangreindra aðgerða er að takmarka uppsöfnun kerfisáhættu í fjármálakerfinu,“ segir í tilkynningu frá nefndinni.</p>\r\n&nbsp;",
  "innerBlocks": []
}
Lækkað lánshlutfall við fyrstu fasteignakaup - Skessuhorn