Fréttir

true

Unnu sér inn þátttökurétt á Landsmóti hestamanna

Í Borgarnesi fór á dögunum fram sameiginleg úrtaka hestamannafélaganna á Vesturlandi. Þar kepptust hestar og knapar við að næla sér í keppnisrétt á Landsmót hestamanna sem fram fer á Hellu 3.-10. júlí. Á Vesturlandi eru fjögur hestamannafélög; Borgfirðingur, Snæfellingur, Glaður og Dreyri. Landsmót hestamanna fór síðast fram í Reykjavík árið 2018 og er þess vegna…Lesa meira

true

Sumartónleikarnir í Saurbæ að hefjast

Dagskrá Sumartónleikanna í Hallgrímskirkju í Saurbæ er komin út en verkefnið er nú á fjórða ári. Í tónleikanefnd eru þau Ásta Jenný Magnúsdóttir, Jósep Gíslason, Margrét Bóasdóttir og Valdís Inga Valgarðsdóttir. Í þetta sinn valdi nefndin úr rúmlega fimmtíu umsóknum listamanna. Upphafstónleikarnir verða næstkomandi sunnudag, 19. júní þar sem boðið verður upp á sumarsveiflu Guitar…Lesa meira

true

Reynir gefur út bók um Hraunholt í Hnappadal

Reynir Ingibjartsson fræðimaður og rithöfundur hefur gefið út bókina Hraunholt í Hnappadal – mannlíf og minningar. Þar lítur hann yfir farinn veg því æskuspor hans liggja á þessum stað. Bókin er 200 síður og ríkulega myndskreytt. Reynir rekur í bókinni minningar sem tengjast bænum þar sem hann ólst upp með móður sinni og afa. Hann…Lesa meira

true

Til hamingju með daginn!

Þjóðhátíðardagur Íslendinga er í dag, 17. júní. Fæðingardags Jóns Sigurðssonar var fyrst minnst með opinberum samkomum árið 1907 en fyrst var haldinn almennur þjóðminningardagur á aldarafmæli Jóns 17. júní árið 1911. Það var svo árið 1944 sem 17. júní var valinn stofndagur lýðveldisins. Síðan hefur hann verið opinber þjóðhátíðardagur og almennur frídagur hér á landi.…Lesa meira

true

Úkraínufólk á Akranesi vill þakka fyrir móttökurnar

Á morgun, þjóhátíðardaginn 17. júní klukkan 14:30-16:00, mun úkraínskt flóttafólk sem nú er búsett á Akranesi bjóða gestum og gangandi að koma við í gamla Landsbankahúsinu við Akratorg. Hópurinn vill með þessu sýna þakklæti fyrir móttökurnar sem fólkið hefur fengið. Boðið verður upp á útkraínska tónlist og smárétti meðan birgðir endast. Andrea Vigfúsdóttir er verkefnastjóri…Lesa meira

true

Frumvarp um nikótínvörur orðið að lögum

Alþingi hefur samþykkt frumvarp heilbrigðisráðherra um breytingu á lögum nr. 87/2018 sem felur í sér að nikótínvörur eru felldar undir lög um rafrettur þannig að í meginatriðum gilda þar með sömu reglur um þennan varning.  Meginmarkmiðið er að tryggja gæði og öryggi nikótínvara og tryggja með tiltækum ráðstöfunum að börn kaupi hvorki né noti nikótínvörur…Lesa meira

true

Niðurrif fyrirhugað á lóðinni Garðabraut 1 á Akranesi

Bæjarstjórn Akraness hefur samþykkt lýsingu vegna fyrirhugaðs deiliskipulags fyrir lóðina Garðabraut 1 á Akranesi þar sem starfsemi KFUM & K var áður til húsa í fjöldamörg ár. Fyrirhugað er niðurrif núverandi byggingar og byggingu fjölbýlishúss í stað hennar. Síðasta ár hefur Byggingarfélagið Bestla notað húsið fyrir sína iðnaðarmenn á svæðinu en ekki liggur enn fyrir…Lesa meira

true

Brautskráð frá Bifröst á laugardaginn

Árleg vorútskrift Háskólans á Bifröst verður klukkan 11 á laugardaginn. Alls verða 134 nemendur útskrifaðir. Þar af eru 112 að útskrifast frá Háskólanum á Bifröst og 22 úr háskólagátt Bifrastar. Skipting brautskráðra á milli háskólastiga er á þá lund að 40 hljóta bakkalárgráðu en 72 eru að fá meistaragráðu. Grunnnámsnemendur skiptast svo þannig á milli…Lesa meira

true

Aukning í alvarlegum veikindum vegna Covid-19

Útbreiðsla Covid-19 er nú vaxandi hér á landi að nýju. Nú greinast opinberlega um og yfir 200 manns á dag en líklega er fjöldinn meiri því margir greinast með heimaprófi og fá ekki greininguna staðfesta með opinberu prófi. Flestir sem greinast hafa ekki fengið Covid-19 áður en endursmit eru undir 10% af daglegum greindum smitum.…Lesa meira

true

Skallagrímur tapaði sínum fyrsta leik

Skallagrímur tók á móti Hvíta riddaranum í A riðli 4. deildar karla í knattspyrnu í gærkvöldi og fór leikurinn fram á Skallagrímsvelli í Borgarnesi. Bæði lið höfðu unnið alla fjóra leiki sína í riðlinum til þessa og því um toppslag að ræða. Hvorugt liðið var með markaskóna með í för í leiknum og það var…Lesa meira