{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Útbreiðsla Covid-19 er nú vaxandi hér á landi að nýju. Nú greinast opinberlega um og yfir 200 manns á dag en líklega er fjöldinn meiri því margir greinast með heimaprófi og fá ekki greininguna staðfesta með opinberu prófi. Flestir sem greinast hafa ekki fengið Covid-19 áður en endursmit eru undir 10% af daglegum greindum smitum.\r\n\r\nÁ vef Covid-19 segir að samhliða þessari aukinni útbreiðslu veirusjúkdómsins þá hefur orðið veruleg aukning á innlögnum sjúklinga með Covid-19. Nú liggja 27 einstaklingar inni á Landspítala með eða vegna Covid-19. Þar af eru tveir á gjörgæsludeild og einn þarf á aðstoð öndunarvélar að halda. Flestir inniliggjandi sjúklinganna eru eldri en 70 ára en alvarleg veikindi sjást aðallega hjá þeim sem hafa fengið þrjár eða færri bólusetningar. Þetta er í samræmi við niðurstöðu erlendra rannsókna um að fjórði bólusetningarskammtur minnkar verulega líkur á alvarlegum veikindum vegna Covid-19.\r\n\r\nÍ tilkynningu frá Almannavörnum segir að fólk er hvatt til að gæta að sínum sóttvörnum; forðast fjölmenni, halda fjarlægð, þvo og spritta hendur og nota andlitsgrímu þegar sóttvörnum verður ekki viðkomið. Þessum tilmælum er sérstaklega beint að þeim sem eru 80 ára og eldri og fólki með undirliggjandi sjúkdóma. Þá er óbólusett fólk hvatt til að þiggja bólusetningu. Eldra fólk og heimilisfólk á hjúkrunarheimilum er hvatt til að þiggja þriðja skammt bólusetningar, sömuleiðis yngra fólk sem getur verið viðkvæmt fyrir covid.",
"innerBlocks": []
}
Aukning í alvarlegum veikindum vegna Covid-19 - Skessuhorn