
Horft til suðvesturs yfir Bifröst og Hreðavatn í Norðurárdal.
Brautskráð frá Bifröst á laugardaginn
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Árleg vorútskrift Háskólans á Bifröst verður klukkan 11 á laugardaginn. Alls verða 134 nemendur útskrifaðir. Þar af eru 112 að útskrifast frá Háskólanum á Bifröst og 22 úr háskólagátt Bifrastar. Skipting brautskráðra á milli háskólastiga er á þá lund að 40 hljóta bakkalárgráðu en 72 eru að fá meistaragráðu. Grunnnámsnemendur skiptast svo þannig á milli deilda að 17 munu útskrifast frá viðskiptadeild, 17 úr félagsvísindadeild og sex úr lagadeild. Skipting meistaranema eftir deildum er síðan þannig að 60 luku námi við viðskiptadeild, fjórir við félagsvísindadeild og átta við lagadeild.\r\n\r\nAð vanda verða verðlaun veitt fyrir besta námsárangur í hverri deild. Þá mun einn nemendi úr hverri deild fá skólagjöld felld niður sem hvatningarverðlaun fyrir framúrskarandi árangur. Streymt verður beint frá hátíðinni á FB síðu Háskólans á Bifröst.",
"innerBlocks": []
}