
Guitar Islancio: Þórður Árnason, Jón Rafnsson og Björn Thoroddsen. Ljósmynd aðsend.
Sumartónleikarnir í Saurbæ að hefjast
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Dagskrá Sumartónleikanna í Hallgrímskirkju í Saurbæ er komin út en verkefnið er nú á fjórða ári. Í tónleikanefnd eru þau Ásta Jenný Magnúsdóttir, Jósep Gíslason, Margrét Bóasdóttir og Valdís Inga Valgarðsdóttir. Í þetta sinn valdi nefndin úr rúmlega fimmtíu umsóknum listamanna. Upphafstónleikarnir verða næstkomandi sunnudag, 19. júní þar sem boðið verður upp á sumarsveiflu Guitar Islancio. Þar leika Björn Thoroddsen, Þórður Árnason og Jón Rafnsson. Næstu tónleikar þar á eftir verða sunnudaginn 26. júní, en þar munu Rósa Jóhannesdóttir og fjölskylda syngja, kveða og spila. Þess má geta að þeir tónleikar falla saman við dagskrá Hvalfjarðardaga. Þar næst stígur Hanna Þóra Guðbrandsdóttir á stokk og flytur sönglög eftir Grieg og Schubert og svo mætti áfram telja. Segja má að efnisskrá tónleikaraðarinnar sé mjög fjölbreytt, allt frá gítarsveiflu og rímnasöng til sveitadansa Bartoks.\r\n\r\nÁ lokatónleikunum verður Guðríðar Þorbjarnardóttur minnst. Þar syngur Sigríður Ásta Olgeirsdóttir og segir frá Guðríði og Jónína Erna Arnardóttir og Morten Fagerli koma fram sem Dúó IsNord.\r\n\r\nHljómburður í Saurbæjarkirkju þykir afar góður og hún hentar mjög vel til tónlistarflutnings. Sumartónleikarnir eru í senn haldnir til þess að vekja athygli á þessari fögru kirkju og efla menningarstarf á þessum sögufræga stað. Margir stuðningsaðilar koma að fjármögnun og allur aðgangseyrir er notaður til að bæta aðstöðu í kirkjunni og síðastliðinn vetur gaf tónleikanefndin t.d. vandað hljóðkerfi þangað. Alls verða átta tónleikar í kirkjunni í sumar á vegum verkefnisins, allir á sunnudögum kl. 16.00. Aðgangseyrir er 3000 kr. og miðasala aðeins við inngang. Nánari upplýsingar má finna á Facebooksíðunni Sumartónleikar í Hallgrímskirkju í Saurbæ.",
"innerBlocks": []
}