
Eyþór Aron Wöhler fagnar öðru marki sínu ásamt Kaj Leó í leiknum. Ljósm. Lárus Árni Wöhler
KR og ÍA gerðu jafntefli í fjörugum leik
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "KR og ÍA áttust við í Bestu deild karla í knattspyrnu í gærkvöldi og fór leikurinn fram á heimavelli KR, Meistaravöllum. Fyrir landsleikjahlé höfðu liðin átt misjöfnu gengi að fagna í deildinni, KR-ingar höfðu unnið þrjá síðustu leiki af fjórum á meðan ÍA hafði tapað síðustu fjórum af fimm og ekki unnið KR í Vesturbænum síðan í lok júní árið 2016.\r\n\r\nLeikurinn byrjaði fjörlega þegar Árni Snær Ólafsson, markvörður ÍA, varði frábærlega frá Ægi Jarli Jónassyni eftir tíu mínútna leik og fimm mínútum síðar kom fyrsta mark leiksins. Gísli Laxdal Unnarsson vann þá boltann af Kennie Chopart, renndi boltanum í hlaupið fyrir Steinar Þorsteinsson sem sendi boltann þvert á teiginn á Eyþór Aron Wöhler sem renndi honum í netið. Stuttu síðar vildu Skagamenn fá vítaspyrnu þegar brotið var á Steinari innan vítateigs en ekkert var dæmt og á 27. mínútu höfðu heimamenn jafnað metin. Atli Sigurjónsson sendi þá flotta fyrirgjöf beint á kollinn á Ægi Jarli sem var aleinn í teignum og skoraði með hörkuskalla, staðan jöfn eftir tæplega hálftíma leik. Þremur mínútum síðar vildu KR-ingar fá vítaspyrnu þegar Oliver Stefánsson renndi sér í teignum fyrir Atla sem féll í teignum en aftur var ekkert dæmt og jafnt var á með liðunum eftir fyrri hálfleikinn.\r\n\r\nKR komst síðan yfir strax í upphafi síðari hálfleiks þegar fyrrnefndur Atli fór illa með varnarmann ÍA og skaut föstu skoti á nærstöngina sem hafnaði í netinu. Tíu mínútum síðar fékk Ægir Jarl gott færi en skaut fram hjá marki ÍA og í kjölfarið tóku Skagamenn við sér og settu pressu á KR-inga. Á 66. mínútu jöfnuðu þeir metin þegar Eyþór Aron komst upp að endamörkum, lagði boltann út í teiginn á Steinar sem setti boltann snyrtilega í netið. Skagamenn komust síðan yfir 3-2 í leiknum þegar Gísli Laxdal fór fram hjá varnarmanni KR inn í teig og lagði boltann snyrtilega fyrir fætur Eyþórs Aron sem kom honum í netið, vel gert hjá þeim félögum. Þegar allt útlit var fyrir fyrsta sigur ÍA í sex ár á KR vellinum náði KR að jafna á næst síðustu mínútunni. Þeir fengu ódýra aukaspyrnu á miðjum velli og Aron Kristófer Lárusson spyrnti inn í teig ÍA þar sem Alexander Davey skallaði boltann yfir Árna Snæ og í eigið mark. Árni Snær lá eftir með skurð í andlitinu eftir að leikmaður KR hafði lent undir Davey og óviljandi sett fótinn í andlit hans. Skömmu síðar flautaði dómarinn leikinn af og lokatölur 3-3 í fjörugum og skemmtilegum leik en óhætt að segja að Skagamenn geti nagað sig í handarbökin að hafa ekki náð í stigin þrjú.\r\n\r\nÍA er nú í tíunda sæti deildarinnar með sjö stig eftir níu leiki en Leiknir og ÍBV eru á botninum með þrjú stig. Næsti leikur ÍA er gegn FH næsta þriðjudag á Akranesvelli og hefst klukkan 19.15.",
"innerBlocks": []
}